sýslumaður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvar hans. Ég get í raun sagt hvort tveggja. Miðað við þær umsagnir sem við höfum lesið þá er enginn skortur á þjónustu í núverandi kerfi sem réttlætir þessa róttæku breytingu og hægt er að ná fram markmiðum frumvarpsins án þess að leggja niður sýslumannsembættin, án þess að leggja niður mikilvæg vel launuð störf á landsbyggðinni og færa þau til höfuðborgarinnar. Ég er mótfallin því. Við landsbyggðarþingmenn, og eflaust líka einhverjir af höfuðborgarsvæðinu, höfum barist fyrir því að færa vel launuð sérfræðistörf til landsbyggðarinnar, ekki taka þau þaðan í því ljósi að það eigi að skapa spennandi störf, án þess að það liggi nokkur greining fyrir á því hversu mörg störf munu skapast, hvernig þau munu vera launuð, hvaða verkefni fylgja þeim og hvernig er hægt að gera þau spennandi og aðlaðandi. Ég fagna því vissulega þegar á að fjölga störfum á landsbyggðinni en til að svara hv. þingmanni þá hræða sporin. Við höfum séð á eftir ansi mörgum sérfræðistörfum, sem hafa verið flutt með handafli til landsbyggðarinnar, færast aftur til höfuðborgarinnar smátt og smátt. Þau leka eiginlega frá landsbyggðinni. Ég veit að það eru allir af vilja gerðir til að reyna að gera það sem þeir geta en það er mikilvægt að standa vörð um það sem þó er á landsbyggðinni í stað þess að sækja og vega að henni með þessum hætti. Ég vona að þetta svari hv. þingmanni.