156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[15:46]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tel mig skilja betur afstöðu þingmannsins eftir það. Það sem ég tengi svo mikið við komandi frá sveitarstjórnarstiginu er óttinn við samskipti við ríkisvaldið. Þó að ráðherrar og stjórnarþingmenn hafi í gegnum tíðina oft sagt að þeir vilji sveitarfélögum vel, vilji efla samskipti um fjárhag sveitarfélaga og bæta þau, styrkja tekjugrunna o.s.frv., þá hafa verkin sagt aðra sögu. Ég trúi því að núverandi ríkisstjórn ætli ekki að starfa eins og fyrri ríkisstjórnir hafa gert hingað til. Ég trúi því að núverandi ríkisstjórn sé að standa við stóru orðin og sýni það nú þegar í verkum, t.d. í samskiptum við sveitarfélögin með samkomulögum sem undirrituð voru í gær. Ég bind miklar vonir við að þau markmið og þær væntingar sem komu fram í orðum ráðherra muni standast og að það sé raunverulega þannig að ríkisstjórnin vilji ekki draga úr þjónustu á landsbyggðinni og vilji fjölga háskólamenntuðum störfum þar. En það þýðir ekki að við eigum að halda í háskólamenntuð störf ef ekki er þörf á þeim, því að það er nóg af störfum sem þörf er á úti á landsbyggðinni sem við gætum frekar eflt með sama fjármagni og myndi sparast með því að leggja niður sýslumannsembættin, ef við metum ekki lengur að þörf sé á að hafa þau úti um allt land. Ég tek undir það í þessari umræðu og tel að styrkur væri af því að hafa sýslumannsembættið staðsett úti á landi, þetta eina embætti sem eftir væri, því að mér finnst það í raun vera í eðli embættisins að eiga frekar heima þar. Í þessum anda þætti mér það vera mjög mikill styrkur. En ég skil bæði og ég tengi við þennan skort á trausti í samskiptum við ríkisvaldið. Ég hef trú á því að það að leggja niður þessi sýslumannsembætti geti raunverulega orðið til að efla þjónustu á landsbyggðinni og að vilji ríkisstjórnarinnar sé að fjölga háskólamenntuðum störfum á landsbyggðinni, að það sé göfugt og gott markmið sem ber að uppfylla.