sýslumaður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvar síðara sinni og skilning hans á hræðslu sveitarfélaga og okkar um þetta mál. Ég held að allar ríkisstjórnir sem ríkt hafa á undanförnum árum, undanförnum kjörtímabilum, hafi alveg staðið við það að flytja störf út á land. Framsókn m.a. flutti heila stofnun til Akureyrar, sællar minningar. Stundum verður samt þróunin sú, þrátt fyrir vilja ríkisstjórnar hverju sinni, að störfin virðast leka frá landsbyggðinni. Fram til þessa hefur enginn náð með einhverjum hætti að tryggja þessi störf þannig að þau haldist þar. Það er hræðslan okkar, vegna þess að hvergi kemur fram í þessu frumvarpi hvernig eigi að tryggja þessi störf, hvernig eigi að efla þau, hvernig eigi að færa sérfræðistörf, vel launuð störf, til landsbyggðarinnar. Það kemur ekki fram þrátt fyrir góða trú þessarar ríkisstjórnar. Ég vona að í framhaldinu við vinnslu málsins komi fram einhverjar greiningar á þessu, af því að það er svo mikilvægt. Orð eins og „[r]eynslan ein mun leiða í ljós í hversu miklum mæli næst að fjölga opinberum verkefnum enn frekar á landsbyggðinni“ segja okkur ekki neitt, hv. þingmaður, og því miður, virðulegur forseti. Ég hef áhyggjur af þessu og í grunninn tel ég að við eigum miklu frekar að horfa til Norðurlandanna, eins og Noregs sem er með raunverulega byggðastefnu, þar sem ef íbúafjöldi viðkomandi sveitarfélags fer undir eitthvert lágmark þá er ríkisstofnun markvisst flutt þangað til þess einmitt að efla vald í héraði. Ekki er verið að leggja niður störf eins og sýslumannsembættin til þess að veikja byggðirnar frekar.