sýslumaður.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir ræðuna og marga mjög góða punkta sem eins og aðrir sem komið hafa upp í dag gagnast okkur í störfum allsherjar- og menntamálanefndar þegar málið gengur til hennar.
Frú forseti. Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort hann sæi mikla annmarka á þeirri hagræðingu sem felst í þessu í ljósi þess að hv. þingmaður og samflokksfólk hans hafa talað mikið fyrir hagræðingu í ríkisrekstri, að skera þurfi niður, fækka ríkisstarfsmönnum og öðru slíku. Mig langar að beina þessari spurningu til hv. þingmanns.