sýslumaður.
Frú forseti. Hér erum við að ræða fækkun sýslumannsembætta þannig að einungis verði eitt embætti yfir allt landið. Markmið frumvarpsins er m.a. að fjölga störfum úti á landsbyggðinni. Ég efast ekkert um góðan vilja hæstv. ráðherra hvað það varðar að efla embættin úti á landi og allt það en það skortir örlítið á í þessu frumvarpi að útskýra hvernig það eigi að fara fram. Ef maður skoðar frumvarpið er það helst, ímyndar maður sér, að það eigi þá að taka við einhverjum öðrum verkefnum vegna þess að sýslumannsembættin hafa jafnvel verið að taka að sér verkefni fyrir Tryggingastofnun og hitt og þetta, þessi sameining í eitt embætti eigi að auðvelda það að taka einhver ný verkefni að sér. En þetta þarf að fá fram í umræðunni, það þarf að skýra hvað liggur að baki til þess að þetta sé eitthvað sem hægt verður að vinna eftir í framhaldinu.
Ég vil líka benda á að það má ekki strika yfir þau verðmæti að þeir sem stjórna ákveðnum embættum hafa staðarþekkingu á þeim stöðum þar sem þeir fara með stjórnsýslu. Ef það er einn aðili á landinu sem á að veita leyfi, t.d. tímabundið áfengisleyfi, þá þarf hann að vera í sambandi við aðila vítt og breitt um landið, mögulega Hornbrekku þar sem eru bjórkvöld af og til. Og hvernig mun sú stjórnsýslan verða einfaldari ef úrvinnsla á því máli fer fram, segjum að ef embættið verður staðsett á Seyðisfirði? Mun það eitthvað auðvelda þetta eða hvert verður gangverkið í stjórnsýslunni?
Þegar verið er að raska þessu fyrirkomulagi og boða sameiningar þá verður að vekja áhuga þeirra sem eru að vinna hjá viðkomandi stofnunum á því að taka þátt í vinnunni því að annars er alveg ljóst, og mörg dæmi eru um það, að þá fer framleiðni á stofnununum niður á við. Þannig að ég segi hér, og það eru mín skilaboð til hæstv. ráðherra, að ef það á að fara í þessa vinnu þá verður að vekja áhuga þeirra sem eru að vinna á viðkomandi stöðum eða í þessu starfsumhverfi á að taka þátt í þessu. Að öðrum kosti er mjög hætt við að hlutirnir fari frekar í þá átt að þetta muni bara leiða af sér kostnað og að þeir sem þurfa að þiggja þjónustuna verði á einhverju skiptiborði jafnvel nr. 10 eða 15 í röðinni. Því miður er það örlítið reynslan af fyrri sameiningum. Ef ekki er gætt að því að vekja áhuga þannig að fólk sjái raunverulega ljósið, þá er hætt við að hlutirnir fari ekki eins og ætlunin er. Það verður ekki bara allt betra við að sameina. Það þurfa að vera einhver mælanleg markmið, það þarf að vekja áhuga þannig að fólk gangi í takt í átt að verkefnunum.
Það er ekki hægt að horfa fram hjá því í þessari umræðu, en hér hafa stjórnarandstæðingar verið heitir á móti frumvarpinu, og það er rétt að rifja það upp, að á liðnum árum hafa stjórnvöld ekki unnið eftir því skipulagi sem hefur verið lögfest. Það hafa ekki verið skipaðir sýslumenn í embætti sem hafa verið laus. Það er t.d. sami sýslumaðurinn nú á Norðurlandi eystra og á Austurlandi og Norðurlandi vestra og á Vesturlandi og gott ef það er ekki á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Það er auðvitað alvarlegt ef ráðuneytið og viðkomandi ráðherra hafa bara verið að framfylgja einhverju allt öðru skipulagi með einhverjum svona undanþáguheimildum í lögum til þess að framfylgja því skipulagi sem þeir vilja koma á en ekki vinna eftir gildandi lögum. Það er svolítið sérstakt þegar á í hlut embætti sem gengur út á það að vera stjórnvald í héraði, halda utan um gögn og vera fulltrúi ríkisvaldsins úti á svæðunum. Þetta er auðvitað það sem maður óttast líka. Í vinnunni fram undan verða menn að horfa á kostnað ríkisins og ekki einungis það heldur einnig þeirra sem eru að sækja þjónustu til sýslumanna og það sé ekki verið að velta auknum kostnaði á almenning sem býr vítt og breitt um landið. Það er nefnilega svo með miðlægar stofnanir sem eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu að þjónustan verður stundum dýrari ef fólk þarf að sækja sérverkefni eða sérþjónustu frá viðkomandi stofnunum út á landið. Ef við horfum á þetta með það fyrir augum að bæta búsetuskilyrði um allt land og reyna að hafa þau einsleitari þá verðum við líka að horfa á þann þáttinn. Það eru dæmi um að flugnemar þurfi að þreyta próf og þeir standa frammi fyrir því að fá senda tölvu norður í land til þess að geta þreytt prófið og sitja við það í sérstakri menntamiðstöð í Eyjafirðinum sem tekur að sér slík verkefni. En það er ákveðinn þröskuldur í því að senda þessar tölvur og eflaust kostnaður, hann er kannski þegar allt er talið til 20.000 kr., en ef við tökum heildarkostnaðinn og berum hann saman við það að þreyta prófið í Reykjavík og stefna nemum suður í borgina — það er uppihald, flug og allt það — þá er heildarkostnaðurinn miklu meiri. Við verðum að horfa til þess að þó svo að eitthvað sparist þá séum við ekki að velta kostnaði á íbúa landsins. Það er eitthvað sem á að forðast.
Þegar verið er að búa til starfssvæði þá hefur maður orðið var við það að sumum starfssvæðum hefur verið breytt þannig að mönnum er jafnvel ætlað að vinna við eftirlit á svæði sem nær frá Skagafirði og vestur á Ísafjörð. Ég hef þá trú jafnvel að þeir sem setja upp þessar starfseiningar hafi ekki endilega verið mikið á ferð sjálfir um landið. Þegar verið er að skipta landinu upp í starfseiningar, sem mögulega verður gert í framhaldi af þessu máli, þá verðum við líka að horfa til þess að þetta séu viðráðanlegar einingar fyrir viðkomandi umdæmisstjóra eða hvernig sem þessu verður háttað. Það væri æskilegt að fá fram nánari sýn ráðherra í framhaldi af þessu máli, hvernig eigi að vinna þetta, og síðan hvernig þessi hagræðing verði og hvernig verði með viðbótarstarfsfólk úti á landsbyggðinni. Ég tel að þetta sé mikilvægt fyrir framhald málsins og það verður fróðlegt að sjá hvernig þessu máli vindur fram.