156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[16:42]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Við ræðum áfram frumvarp til laga um sýslumann frá hæstv. dómsmálaráðherra. Ég átti hér fyrr í dag ágæt orðaskipti við hæstv. ráðherra. Mér þykir þó málið kannski ekki alveg tæmt því það er nú svo að sýslumenn bera ábyrgð á málaflokkum sem varða mikilvægustu réttindin í samfélaginu, réttindi og skyldur sem varða börnin okkar, lögræðismálefni ungra og sjúkra, nauðsynleg réttindi vegna híbýla, þarna er kannski sérstaklega verið að vísa til þinglýsinga, og innheimtu opinberra gjalda sem knýja þjóðarskútuna svo að fátt eitt sé talið. Alþingi hefur frá örófi alda ákveðið að meðferð slíks ríkisvalds sé best fyrir komið hjá hliðsettum stjórnvöldum um land allt, sýslumönnum. Hingað til hefur verið lýst nákvæmlega í lögum hvað sýslumenn gera og í hvaða umdæmum þeir starfa. Þetta frumvarp gerir hins vegar ráð fyrir umfangsmiklu framsali Alþingis til dómsmálaráðherra sem eftirleiðis er ætlað að lýsa skipulagi embættisins í reglugerð. Ekki í lögum heldur í reglugerð. Þetta þykir mér vera grunnstefið í þessu máli. Jafnvel þó að í markmiðunum sé lýst mörgu góðu og mörgu álitlegu þá er það gert í markmiðum og með reglugerð en ekki skrifað í lögin.

Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu með því að vitna í einhverju löngu máli í annað mál sem hér er til umfjöllunar, sem er frumvarp sem hv. þm. Jón Gunnarsson hefur lagt fram. En kannski er eðlismunurinn á þessu frumvarpi þó einmitt sá að í því frumvarpi er þetta skrifað inn í lögin. Ég spurði hæstv. ráðherra aðeins út í þetta í dag og fékk ágæt og málefnaleg svör en ekki þó nákvæmlega svar um hvers vegna ekki væri ákjósanlegt að taka skrefið alla leið og skrifa það inn í lögin. Það heyrist bara á umræðunni hér í dag, herra forseti, að hún er kannski ekki svo lagatæknileg, hún er byggðatengd, og ekki að ósekju því að með þessu frumvarpi er ekki aðeins verið að leggja til grundvallarbreytingar á rótgrónu fyrirkomulagi, hér er verið að afleggja lögbundið fyrirkomulag sem ekki aðeins tryggir tengsl embættismanna við landsvæðin sem þeir starfa á heldur stuðlar að því að valdinu sé dreift í stað þess að þjappa því á einn og sama kontórinn.

Ég vék í samskiptum mínum við hæstv. ráðherra í dag einmitt að því hver væri tryggingin fyrir því að þessum markmiðum sem lýst er yrði náð, sem stendur til að ná með reglugerðarsetningu. Þá er það jú í samráði við fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga og nýjan sýslumann sem skipaður er af hinum sama hæstv. ráðherra. Þetta tel ég alls ekki vera nógu fullnægjandi ferli og þetta róar mig ekkert sem landsbyggðarmann. Ég heyri ekki betur en að hér séu bæði aðilar sem tilheyra minni hluta og sem tilheyra framkvæmdarvaldinu, meiri hlutanum, að viðra þessar áhyggjur á svipuðum nótum. Það er enda lágmarkskrafa þegar svo veigamiklar breytingar eiga sér stað að upplýst og fullnægjandi umræða eigi sér stað. Það er ekki nóg að vísa í orð ríkisendurskoðanda frá árinu 2019 eða skýrslu frá árinu 2021. Þessi krafa verður enn ríkari þegar um svo rótgróið skipulag er að ræða og til stendur að færa meira vald á færri hendur.

Vissulega er mikilvægt að ryðja úr vegi hindrunum á stafrænni málsmeðferð og tilfærslu verkefna innan stjórnsýslunnar en það má ekki vera á kostnað grunnstoða stjórnsýslu ríkisins í héruðum landsins. Sannarlega er mikilvægt að ryðja brautina fyrir ný verkefni og stuðla að hraðari innleiðingu stafrænna lausna. En herra forseti, þetta var líka sagt við fækkunina árið 2015. Hvernig var því fylgt eftir, herra forseti? Við skulum rifja það aðeins upp því það er ástæða fyrir því að við stöndum hér í dag og erum að ræða þetta. Sporin hræða. Hvernig var því fylgt eftir? Ekkert verkefni, ekki eitt einasta verkefni var flutt til sýslumanna eftir sameiningarnar. Þetta er sagan sem við byggjum þetta ferli á. Það er því ekkert óeðlilegt við það að við sem þekkjum það og höfum alist upp og búið úti á landi höfum áhyggjur af því hvaða möguleg þróun er hér að fara af stað. Með þessu er ég ekki, svo það sé sagt og komi skýrt fram, að ætla hæstv. ráðherra eitthvert plott. Það er ekki mergurinn málsins. Það væri jafnvel til að róa mig ef ég gæti bara verið viss um að viðkomandi ráðherra yrði bara áfram ráðherra, en það munu koma aðrir ráðherrar, handhafar þessa valds sem við erum hér að búa til. Þess vegna verður nýr dómsmálaráðherra að sýna á spilin. Hvaða verkefni eru þetta? Hvaða lausnir eru það sem sýslumenn hafa farið fremstir í flokki við innleiðingar á, hvaða stafrænu lausnir síðustu ára sem þeir eru að bjóða upp á? Gengur það ekki bara býsna vel? Ég held að það sé almenn ánægja með það. Ég hef séð súlurit yfir það að það er bara talsverð ánægja með hvernig þetta kerfi hefur verið innleitt og hvernig sýslumenn hringinn í kringum landið eru að standa sig í því.

Sama gildir um aukna byggðaáherslu sem lesa má út úr frumvarpinu. Það er öllum ljóst hvað átt er við í raun og veru. Ekkert er fast í hendi um útfærsluna. Hvaða verkefni, hvaða störf mun næsti loðnubrestur e.t.v. koma í veg fyrir? Það þurfa að vera fjárveitingar til að fylgja eftir öllum þeim góðu markmiðum sem ráðherra setur hér.

Það eru ótal spurningar um fyrirkomulagið og framtíð embættanna sem vakna við lestur frumvarpsins sem bíða betri tíma en hér er verið að hlaupa allt of hratt, að ég tel, það er mitt mat. Sá sem hér stendur, eins og áður hefur komið fram í þessu stutta innslagi, er fæddur og uppalinn á landsbyggðinni og er búinn að hlusta á sambærileg loforð ár eftir ár, áratug eftir áratug. En þróunin er alltaf eins, m.a. í aðdraganda þessa máls eins og ég vék að áðan. Hversu mörg störf og hversu mörg verkefni fylgdu fækkuninni 2015? Ekkert, herra forseti, ekki eitt einasta, þannig að við höfum fullan rétt á því hér, talsmenn landsbyggðarinnar, að vera hræddir við það hvert við erum að stefna.