156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[16:49]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu og ég þakka þá umræðu sem hefur farið fram hér í dag, hún er góð og málefnaleg. Hann nefndi sérstaklega breytingarnar 2015, það hafi verið væntingar til breytinga sem ekki hefðu orðið. Þetta er nefnt hér í greinargerðinni en þar segir, með leyfi forseta:

„Þessar væntingar hafa ekki gengið eftir nema að hluta þar sem umfang verkefnanna hjá minni embættum býður í reynd ekki upp á sérhæfingu starfsmanna nema að takmörkuðu leyti.“

Þá spyr ég hv. þingmann: Treystir þú því að verði þessar breytingar að lögum sem við höfum rætt um í dag að þá munum við ná fram breytingum, að það verði færð til verkefni til hins nýja embættis og á milli deilda embættisins? Mér finnst ég ekki alveg ná til hv. þingmanns. En væntingarnar sem við gerðum okkur 2015 hafa ekki náðst. Verði þessar breytingar í frumvarpinu að lögum, myndir þú þá halda að við næðum fram þessum breytingum sem við væntum 2015 um dreifingu starfa innan hins nýja embættis? (ÞorgS: Ertu að spyrja um það sem við erum að leggja til … ?)

(Forseti (KGH): Forseti minnir þingmenn á að vera ekki með samræður úr sal.)