156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[16:53]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Frá mínum bæjardyrum séð er þessari spurningu auðsvarað. Ég hef akkúrat engar áhyggjur af þessu. Við erum með fagfólk í alls konar störfum hringinn í kringum landið, sem betur fer enn þá. Við erum að fá úrvalskennara, við erum að fá úrvalslækna og fræðimenn á hinum ýmsu sviðum og ég sé ekki fyrir mér að til að mynda þeir reynslumiklu sýslumenn sem starfa nú þegar hringinn í kringum landið gætu ekki hugsað sér að sækja um starfið. Hv. þm. Grímur Grímsson nefndi Húsavík, ég reyndar gerði það aldrei en ég myndi að sjálfsögðu ekki berjast gegn því. En nei, ég hef ekki áhyggjur af því. Og ég held kannski, þó að ég sé ekki að brigsla hv. þm. Grími Grímssyni um einhverjar hvatir, að í þessari umræðu sé það einmitt þetta sem kemur alltaf í gegn: Ræður landsbyggðin við þetta? Er svona lítill staður fær um að vera með svona umfangsmikið starf? Já, ég held að eins og nútíminn er farinn að virka, með símana og tölvurnar og netið og fjarfundina, þá sé mjög auðvelt að gera þetta, þess vegna á Djúpavogi. Aðalatriðið er að við skrifum þetta inn í lögin. Gerum þetta ekki með reglugerð. Skrifum þetta inn í lögin þannig að það sé tryggt að kerfið sem við erum að reyna að verja, þjónustan úti á landi, haldi; að það velti ekki á því hver situr á ráðherrastóli hverju sinni.