156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

sýslumaður.

186. mál
[16:54]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Herra forseti. Við höfum verið hér í dag að ræða frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra um fækkun sýslumanna. Umræðurnar hafa verið mjög góðar. Það er búið að bera hérna fram, eins og við viljum hafa það hér í þingsalnum, áhyggjur, rökstuðning fyrir breytingum líkt og, svo ég nefni sem dæmi, hv. þm. Ingibjörg Isaksen gerði í sínu máli og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson gerði í sínu máli og fleiri. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur sem sitjum í allsherjar- og menntamálanefnd, sem fáum þetta mál til okkar, að hlusta vel og við höfum gert það í dag og það er mjög mikið fóður sem við höfum fengið inn í okkar vinnu í nefndinni. Það verður spennandi að takast á við þetta verkefni og ég vænti góðs samstarfs í nefndinni um það að við erum með þessi tvö frumvörp og það verður ákveðin samlegð í því að vinna þau á svipuðum tíma a.m.k., þannig að verkefnið er stórt og verkefnið er mikilvægt.

Það kom líka fram í máli hæstv. dómsmálaráðherra svar við þeim efasemdum sem hér hafa komið aftur og aftur fram í dag og áhyggjum um að þetta muni leiða til fækkunar starfa á landsbyggðinni og ég sem landsbyggðarþingmaður og fleiri sem eru í þessum sömu sporum höfum auðvitað áhyggjur af því að hagræðing í ríkisrekstri skili sér í færri störfum á landsbyggðinni því að það sé einfaldara að hafa verkefnin hér á höfuðborgarsvæðinu. En við höfum líka dæmi um hitt þar sem við erum að sjá flutning stofnana út á land, nýverið t.d. stofnun sem var flutt á Hvolsvöll og þetta er að virka mjög vel. Það er bara eitt af því sem ég held að við tökum með okkur inn í nefndarvinnuna, einmitt þessi umræða um staðsetninguna, mikilvægi hennar, og mikilvægi þess að tryggja störfin. Ég treysti hæstv. dómsmálaráðherra Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur mjög vel fyrir því. Það kom fram í máli hennar áðan að hún myndi hafa eftirlit með því að þetta myndi raunverulega skila sér í betri þjónustu og fjölgun starfa á landsbyggðinni. Sá sem hér stendur mun alveg veita hæstv. dómsmálaráðherra aðhald í þeim efnum og ég þykist vita að fleiri landsbyggðarþingmenn muni gera það.

Það er mjög mikilvægt að við vinnum þetta mál vel en það er líka mjög mikilvægt að við komum því í gegnum þingið núna á vormánuðum til að hægt sé að fara í undirbúninginn, ráða sýslumanninn, skipa þá starfshópa sem þarf að gera til að þetta verkefni, líkt og gert er ráð fyrir í frumvarpinu, geti tekið gildi um næstkomandi áramót. Þá mun það Alþingi sem hér starfar hafa þrjú ár til að fylgjast með því að það fari með þetta verkefni líkt og hæstv. dómsmálaráðherra hefur verið mjög skýr með. Ég styð þetta frumvarp eindregið en hlusta á sama tíma mjög vel á þær efasemdaraddir og þær tillögur og hugmyndir sem hér hafa verið viðraðar í þessari góðu umræðu í dag.