varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokks um að Sigurður Ingi Jóhannsson verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Alma D. Möller verði fjarverandi á næstunni. Þá hefur borist bréf frá varaformanni þingflokks Flokks fólksins um að Ásthildur Lóa Þórsdóttir muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni.
Í dag taka því sæti á þingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, Jóhann Friðrik Friðriksson, 1. varamaður á lista Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi, Árni Rúnar Þorvaldsson, og 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, Elín Íris Fanndal.
Jóhann Friðrik Friðriksson og Elín Íris Fanndal hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.