156. löggjafarþing — 19. fundur, 24. mars 2025.
mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Flokks fólksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir taki sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Guðmundar Inga Kristinssonar og Sigurjón Þórðarson sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild Norðurlandaráðs í stað Guðmundar Inga Kristinssonar.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.