ábyrgð forsætisráðherra vegna afsagnar mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegi forseti. Ásthildur Lóa Þórsdóttir lét af embætti mennta- og barnamálaráðherra í síðustu viku í kjölfar þess að upp komu upplýsingar um atvik úr hennar fortíð. Með því lauk setu hennar í ríkisstjórn og sú ákvörðun, hver sem aðdragandinn var, hefur nú þegar verið tekin. Því er ekki tilefni til að velta því frekar upp hér í þingsal hvaða mat eigi að leggja á þessa fortíð. En það sem situr eftir og kallar á svör er ábyrgð forsætisráðherra. Í opinberri tímalínu sem forsætisráðuneytið birti kemur skýrt fram að ákvörðunin um að ráðherra myndi víkja hafi verið tekin áður en nokkur vissi af málinu og áður en fjölmiðlar fjölluðu um málið í samráði við forsætisráðherra, fyrrum ráðherra og formenn stjórnarflokkanna. Ráðherrann hefur síðar lýst þeirri ákvörðun sem ósanngjarnri. Forsætisráðherra hefur ekki gert grein fyrir hvaða aðrir valkostir voru ræddir, ef einhverjir voru, eða hvað í málinu leiddi til þessarar niðurstöðu. Það er mikilvægt að þingið og þjóðin fái skýr svör. Hvers vegna var það mat forsætisráðherra og samstarfsflokkanna að Ásthildur Lóa Þórsdóttir skyldi víkja úr embætti og hvaða aðrir kostir voru í raun til skoðunar áður en ákvörðun var tekin?