156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

ábyrgð forsætisráðherra vegna afsagnar mennta- og barnamálaráðherra.

[15:05]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég verð að segja að í grundvallaratriðum er það auðvitað fyrrverandi ráðherra að segja frá því hvers vegna hún tekur þá ákvörðun að segja af sér. Samtal okkar þriggja á milli verður ekkert viðrað hér í smáatriðum. Auðvitað eru ýmsir þættir málsins sem eru ræddir. Ég held að það liggi alveg fyrir, eins og hefur bara víða komið fram, enda hefur þetta mál verið viðrað mjög rækilega og allar upplýsingar borist, að það er á þessum fundi sem ég og formaður Viðreisnar fáum í fyrsta skipti frásögn þáverandi ráðherra af þessari stöðu. Þetta er í fyrsta skipti sem við ræðum við hana um þetta mál og stór hluti fundarins fer einfaldlega í að fara yfir málið. Síðan er auðvitað fjöldinn allur af aðstæðum sem er hægt að varpa upp í þessu samhengi. Það er ekkert endilega verið að leggja dóm á það sem kom fram, enda held ég að fólk geti verið með skiptar skoðanir á því hvað var refsivert þarna og hvað ekki, ef nokkuð. En ég held að það liggi alveg fyrir og ég hef sagt það sjálf opinberlega, og Ásthildur Lóa Þórsdóttir er meðvituð um það, að það voru til að mynda ekki eðlileg viðbrögð hjá henni að ákveða að banka upp á hjá umræddri konu. Ég held að það geti allir tekið undir að það er ekki eðlileg hegðun af hálfu ráðherra í þessu samhengi. Þannig að það eitt og sér finnst mér umhugsunarvert hjá manneskju í slíkri stöðu. Hún áttaði sig á því og var líka meðvituð um það.

Síðan vil ég bæta því við að algjörlega óháð því hvað í grundvallaratriðum réð hennar afstöðu, því að það er ekki mitt að segja frá því hvað dreif hennar ákvarðanatöku í grundvallaratriðum, þá liggur það auðvitað fyrir að þegar upp koma svona mál þá taka þau á og fólk þarf einfaldlega tíma til að jafna sig.