aðkoma utanríkisráðherra að afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar. Mörgum hefur þótt vera nokkuð breytt nálgun Viðreisnar gagnvart því máli sem hér kom upp undir lok síðustu viku samanborið við snúið mál sem kom upp árið 2017, í september nánar tiltekið, og mikill munur raunar þar á. Mig langar við þetta tækifæri að spyrja hæstv. utanríkisráðherra — kannski er þetta líftími flokksins sem orsakar að það er tekið á því með öðrum hætti en áður var en það breytir því þó ekki að hæstv. utanríkisráðherra lýsti því sem svo í gær á tröppum Bessastaða að gærdagurinn væri góður dagur. Ég er nú ekki sannfærður um að það sé mat allra að gærdagurinn hafi verið góður dagur en látum það mat liggja á milli hluta. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra, biðja um stutta útskýringu á því með hvaða hætti þessi ákvörðun var tekin hvað Viðreisn varðar. Var ráðgjafaráðið, sem ályktaði títt árið 2017, kallað til skrafs og ráðagerða eða var þetta leyst að fullu innan hóps valkyrjanna, sem kalla sig svo? Og mig langar til að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort ráðherrann setti þrýsting á fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra um að segja af sér embætti.