aðkoma utanríkisráðherra að afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegi forseti. Það er nú þannig með þessa ríkisstjórn að þegar mál og oft snúin mál, erfið mál, persónuleg mál jafnvel, koma fram, þá talar forystufólkið í ríkisstjórnarflokkunum saman. Annað væri eitthvað óeðlilegt. Við settumst þarna fjórar og fórum yfir þetta erfiða mál og, eins og ég segi, mjög persónulegt mál. Ég held að það sjái það allir í dag, við öll í þessum þingsal og líka jafnvel mjög stór hluti af samfélaginu, að þetta mál er, að mínu mati, í dag þannig vaxið að það er meira sem hvílir á fjölskyldu Ásthildar Lóu að standa saman heldur en að við í stjórnmálunum reynum að gera okkur stærri á grundvelli þessa máls eins og sumir virðast vera að gera. Ákvörðunin var algerlega hennar. Það var hennar ákvörðun eftir að við höfðum átt samtal saman. Það var ekki þrýstingur, en þetta var samtal þar sem var farið yfir málið og við fengum innsýn í heildarmyndina.
Ég held hins vegar að við mörg getum lært af þessu máli.(Forseti hringir.) Ég held, hvort sem það erum við hér inni eða samfélagið, að það væri hollt fyrir okkur öll að spá í hvaða lærdóm við getum dregið síðan af þessu máli öllu.