Vinnubrögð stjórnarflokkanna í máli fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Þar kom margt áhugavert fram sem maður ætti að nefna. Ég vil í fyrsta lagi að það komi skýrt fram að ég er ekki að tala um þátt fyrrverandi ráðherra, Ásthildar Lóu Þórsdóttur, í þessu samhengi. Ég er að tala um þátt forsætisráðuneytisins, sem er það ráðuneyti sem borgari þessi leitaði til. Kjarninn er þessi: Það er beðið um áheyrn hjá forsætisráðherra varðandi upplýsingar um ráðherra í ríkisstjórn hennar sem er ekki orðið við. Hvaða skilaboð er verið að senda gagnvart þeim sem áskynja verða um eitthvað misjafnt varðandi ráðherra ríkisstjórnarinnar? Er ekki hægt að koma fram með alvarlegar ábendingar um ráðherra í ríkisstjórn Íslands? Mátti búast við því að umræddur ráðherra fengi allar upplýsingar um þá sem spurði, óvart eða ekki, eða stóð það aldrei til eða hvernig var það: Það er bara því miður ekki hægt? Hvernig fer eiginlega saman að segja að forsætisráðherra hafi ekkert gert rangt þó að hún hafi hvorki orðið við erindinu né hafi getað verndað þann sem kom fram með upplýsingarnar? (Forseti hringir.) Er verið að segja eitthvað annað en að það sé einfaldlega ekki hægt að koma ábendingum á framfæri um ráðherra í ríkisstjórninni, (Forseti hringir.) að það sé ekki hægt að uppljóstra um valdhafa (Forseti hringir.) í íslensku samfélagi? Því að á sama tíma, frú forseti, og hæstv. forsætisráðherra vildi ekki meðtaka upplýsingarnar og verndaði ekki (Forseti hringir.) uppljóstrarann var ekkert gert rangt.