aðgerðir ríkisstjórnarinnar í málefnum barna og menntunar.
Virðulegi forseti. Frá því að núverandi ríkisstjórn tók við má segja að þjóðin hafi haft miklar væntingar til hennar. Við öll óskuðum ríkisstjórninni velfarnaðar í sínum verkefnum, brýnum verkefnum fyrir land og þjóð. En veruleikinn er sá að síðustu þrír mánuðir hafa einkennst af samfelldum vandræðagangi stjórnarflokkanna; ítrekuð misbeiting á valdi ráðherra, haft í hótunum við fjölmiðla þegar umfjöllun þykir óþægileg, valdhroki blasir við og ríkisstjórnin ekki eldri en rétt rúmlega þriggja mánaða. Það má segja að atburðarás síðustu mánaða og sérstaklega síðustu viku skilji þjóðina eftir bæði ringlaða og eflaust líka dapra. Nú hefur verið skipt um einn ráðherra í brúnni og því vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Megum við búast við meiri vandræðagangi eða ætlar hæstv. ríkisstjórn að setja mikilvæg þjóðþrifamál í forgang í sinni vinnu? Hér er undir viðkvæmur málaflokkur. Hvað ætlar hæstv. forsætisráðherra að gera til þess að mikilvæg mál sem þurfa að ná fram að ganga í barna- og menntamálaráðuneytinu stöðvist ekki við þessa uppákomu?