156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í málefnum barna og menntunar.

[15:28]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna sem mér þykir góð að því leytinu til að ég hlakka verulega til að takast á við þau verkefni sem fram undan eru. Ég vil bara nefna að í síðustu viku lauk þessi ríkisstjórn samningi við sveitarfélögin í landinu, sem síðustu ríkisstjórn tókst aldrei að gera, í tilvikum barna með fjölþættan vanda. Við erum byrjuð að klippa á og leysa hnúta varðandi hjúkrunarheimili landsins þegar kemur að fjármögnunarhluta þeirra. Við erum líka að taka fast á öryggisvistunarmálum, eitthvað sem síðustu ríkisstjórn tókst ekki að gera. Við erum þar með talið að taka á rosalega stórum hluta sem snýr að fullnustukerfinu, fangelsismálakerfinu, og í ofanálag er ég full tilhlökkunar að sýna hérna fjármálaáætlun sem verður birt eftir rúma viku þar sem fram kemur stökkbreyting í ríkisfjármálum landsins sem sannarlega var þörf á. Þannig að næg eru verkefnin eftir síðustu ríkisstjórn sem þessi ríkisstjórn er nú þegar búin að taka á, málefni sveitarfélaganna er snúa að börnum með fjölþættan vanda, málefni hjúkrunarheimilanna, öryggisvistunarmálin, taka á afkomuvanda sem hefur lengi blasað við hjá ríkinu. Allt þetta hefur gerst á innan við 100 dögum hjá þessari ríkisstjórn. Og þó að upp hafi komið mál sem snertir einkalíf einstaklings, persónulegan harmleik fjölskyldu, þá hefur það ekkert með störf þessarar ríkisstjórnar að gera. Ég veit að allir í þessum sal vita það innst inni að það mál sem kom fram í fjölmiðlum um helgina hefur nákvæmlega ekkert með störf ríkisstjórnarinnar að gera heldur með málefni einstakrar fjölskyldu. Þetta er ekki pólitískt mál og leyfum því ekki að verða það, í guðanna bænum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)