aðgerðir ríkisstjórnarinnar í málefnum barna og menntunar.
Frú forseti. Mér finnst mér bera skylda til þess að nefna það hér í upphafi að afsögn ráðherra hafði ekkert að gera með samstöðu eða samstöðuleysi þessarar ríkisstjórnar. Ég ítreka að um einkamál var að ræða sem var ekki pólitísks eðlis. Það er einmitt svo, að vegna þess að samstaðan er mikil í þessari ríkisstjórn þá er það ekki þannig að fagráðherra og fagráðuneytið eitt og sér sé úrskurðaraðili um það hvort mál komist áfram. Þess vegna hef ég ekki svona miklar áhyggjur af því. Þrátt fyrir að það sé auðvitað ekki gott að þurfa að standa frammi fyrir skiptum í ráðuneytum þá er samfella. Það er pólitísk samfella í þessari ríkisstjórn og fólk labbar ekki bara inn og gerir eitthvað þvert á ríkisstjórnarsamstarfið. Fólk stendur saman í þessari ríkisstjórn og er inni í þeim málefnum sem á að afgreiða í þessari ríkisstjórn og það hefur ekki breyst þrátt fyrir atburði síðustu daga.
Hvað varðar öll þessi fínu mál þá er það auðvitað þannig að við munum öll eftir því hvernig klippt var á borða hérna rétt fyrir kosningar, (Forseti hringir.) hvaða heimili átti að taka til notkunar sem hafa skilað af sér gríðarlegum kostnaði fyrir ríkissjóð. Það er líka þannig (Forseti hringir.) að samningurinn við sveitarfélögin lá ekki á borðinu. Það er þessi ríkisstjórn sem undirritaði þann samning. Höfum það alveg á hreinu.