156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

afsögn mennta- og barnamálaráðherra.

[15:34]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Fulltrúum ríkisstjórnarinnar er tíðrætt um að hv. þingmenn og aðrir þurfi ekki að hafa áhyggjur af þunnum stjórnarsáttmála því að traust sé svo mikið á milli flokkanna. Það er eins gott því að raunveruleikinn er sá að hvert furðumálið rekur annað. Svo gerist það á 100 daga afmæli þessarar ríkisstjórnar að hæstv. barna- og menntamálaráðherra segir af sér. Það gerir ráðherrann ósáttur en að eigin frumkvæði, líkt og hæstv. forsætisráðherra hefur staðfest. Hæstv. forsætisráðherra svaraði blaðamanni um málið með þessum hætti, með leyfi forseta:

„Við ræddum í sameiningu um þá valkosti sem uppi voru …“ — og bætti við: „Eftir að hafa farið yfir alla valkosti í málinu þá var þetta niðurstaða hæstv. mennta- og barnamálaráðherra.“

Því spyr ég, líkt og hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir spurði áðan: Hverjir voru hinir valkostirnir? Var það að einn flokkanna sliti sig frá samstarfinu? Var það tilfærsla milli ráðuneyta eða að ríkisstjórnin myndi ella springa? Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hverjir voru hinir valkostirnir? Ef hæstv. ráðherra vill ekki svara því þá spyr ég: Var óbreytt mönnun ríkisstjórnarinnar valkostur? Telur hann eitthvað refsivert í málinu? Og settu tvær valkyrjur þrýsting á þá þriðju?