afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Ég ætla bara að biðja fólk hér inni að gæta orða sinna þegar það talar um furðumál. Þetta er mjög viðkvæmt persónulegt mál. Ég ætla bara að biðja fólk um að tala ekki með þessum hætti, eins og þetta sé eins og hvert annað mál sem komi upp í pólitík. Við vitum þetta öll hérna inni. Við skulum ekki gera pólitík úr þessum málum.
Hvað varðar umræddan fund þá er það auðvitað af virðingu við fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra sem ég beini því að umræddum hv. þingmanni að ræða við hana, af virðingu við hana, ekki taka af henni valdið í þessum sal og láta eins og hún hafi ekki sitt eigið ákvarðanavald. Af virðingu við hana skulum við horfast í augu við það að hún tók stórt skref, sem er ekki sjálfgefið í íslenskri stjórnmálasögu, að stíga til hliðar vegna þess að það var það sem hún taldi rétt í stöðunni. Af virðingu við hana og fjölskyldu hennar og fjölskyldur þessa fólks skulum við ekki gera lítið úr þessari stöðu sem upp var komin. Ég beini þeim tilmælum einfaldlega til þeirra hér inni sem hafa svona mikinn áhuga á þessari ákvarðanatöku og hvort hún hafi vald í sínu eigin lífi, að ræða við hana, af virðingu við hana.
Milli okkar fjögurra, formanna flokkanna og umrædds fyrrverandi ráðherra, hefur alltaf ríkt fullkomið traust. Við getum talað saman sem kollegar, sem manneskjur, sem vinkonur og rætt og ráðlagt án þess að taka af henni valdið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)