afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Það er auðvitað fjöldinn allur af skilaboðum og tölvupóstum sem berast forsætisráðuneytinu, sumir þeirra rata inn á skrifstofutíma, ekki allir. En í umræddu máli þá ítreka ég bara það sem hér hefur verið sagt: Það voru sex dagar liðnir frá því að erindið barst inn á skrifstofuna. (Gripið fram í.) Það voru sex dagar síðan erindið barst inn á (Gripið fram í.) skrifstofuna (Forseti (ÞSv): Ráðherra er með orðið.) og í þannig máli er ekki eðlilegt að vera strax búin að bregðast við. Hefur álíka mál komið til mín? Ég hef ekki séð álíka mál komið inn en einmitt vegna þess að það er viðkvæmt, vegna þess að það er annars eðlis þá tekur tíma að taka ákvörðun um það hvað beri að aðhafast. Ég hef sagt það áður og segi það hér: Vissulega (Forseti hringir.) er það svo að vika er langur tími í pólitík en allir sem hafa starfað í stjórnsýslunni vita að það er mjög skammur tími (Forseti hringir.) í stjórnsýslu, sérstaklega ef maður ætlar að vanda til verka.