156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

3. mál
[15:41]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Mig langar bara til að koma hér og lýsa yfir stuðningi Framsóknar við þetta mál. Ég styð það heils hugar. Það var unnið af heilbrigðisráðuneytinu á síðasta kjörtímabili og felur í sér nauðsynlegar og tímabærar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um embætti landlæknis og lýðheilsu. Það byggir á góðum og vönduðum undirbúningi sem unninn var í tíð síðustu ríkisstjórnar og sýnir fram á mikilvægi þess að mál haldi áfram óháð því hverjir stjórna hér í landinu. Þannig að við í Framsókn styðjum málið og hlökkum til að sjá þessar breytingar stuðla að bættri umgjörð.