156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

grunnskólar.

97. mál
[16:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Ég skil þetta þannig, og þetta höfum við ítrekað átt umræðu um, að það sé fjöldinn allur af prófum, banki spurninga og prófa. Ef maður ímyndar sér lottó þá skoppa kúlurnar þarna um. Þarna er ákveðin rótering í gangi og ég sé því ekki fyrir mér að hér sé eitt próf nákvæmlega svona sem verði lagt fyrir nákvæmlega þannig ári seinna eða þremur árum seinna. Nei, ég held að þarna sé verið að tala um aðra hluti, eitthvað sem við höfum einmitt ekki séð áður. Það er verið að rótera spurningum, spurningaflóði, og prófum. Þetta er eitthvað sem við munum aldrei vera með nefið ofan í til að skoða nákvæmlega hvernig fer fram en þetta er kerfi sem er gjörólíkt því sem hefur verið þar sem eitthvert eitt próf, sem er nákvæmlega eins, er lagt fyrir ár eftir ár. Það er kannski þess vegna sem við erum búin að kalla eftir minnisblaði um nákvæmlega þetta atriði frá ráðuneytinu sem hefur skýrt þetta ótrúlega vel. Það verða því ekki þessar hefðbundnu prófsýningar eins og var á árum áður, þar sem hægt var að koma og fá að sjá prófið. Það verður ekki þannig. En í svari frá ráðuneytinu kom fram að foreldri getur ef það vill séð svör við einstökum spurningum barns og að sjálfsögðu niðurstöður, og ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu. En það er ekki prófsýning í þessum hefðbundna gamla skilningi þar sem maður gat fengið að sjá prófið því að mögulega munu spurningar úr prófinu vera lagðar fyrir aftur.