156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

grunnskólar.

97. mál
[16:40]
Horfa

Frsm. minni hluta allsh.- og menntmn. (Jón Pétur Zimsen) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Takk fyrir ábendinguna. Það er alger óþarfi fyrir hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur að leggja mér orð í munn. Ég fór yfir það, hún getur bara kynnt sér það, sem nefndarálitið felur í sér. En já, það er ábyrgð að vera í nefnd og það er ábyrgð að afgreiða mál úr nefnd. Og það mun ekki hlakka í mér eftir einhvern tíma ef samræmdi hluti Matsferilsins mun ekki ganga upp. Það mun ekki hlakka í mér. Ég ber hag barna fyrir brjósti. Og ég er ekki að tala þann hluta Matsferilsins niður sem snýr að fjölbreyttum tækjum fyrir kennarana þrátt fyrir að hv. þingmaður síendurtaki það hér í pontu. Ég er að tala um samræmda skyldubundna hlutann. Mér þætti bara vænt um það, ef hv. þingmaður kemur hér í andsvör, að það yrðu þá andsvör við það sem ég var að segja. Það kemur fram í minnisblaðinu að hvert próf sé lagt fyrir í hverjum árgangi í óbreyttri mynd á milli ára; að notkun sama prófs í óbreyttri mynd á milli ára sé nauðsynleg forsenda þess að hægt sé að meta breytingar á námsárangri yfir tíma með beinum hætti. Þetta er alveg skýrt og ég veit að við erum öll ágætlega læs.