156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

grunnskólar.

97. mál
[16:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Já, svo að ég haldi áfram, ég ætla ekki að þjarka svo mikið meira um þetta, en það fá ekki öll börn sama próf. Þetta er ekki eins og þetta var með samræmdu prófin. Við erum hér með annað kerfi í gangi, það er annar tilgangur, þ.e. að draga upp heildstæða mynd af stöðu og framförum barna í grunnskólum. Þetta er eitthvað sem kannski er erfitt fyrir mjög marga að sætta sig við. En þessi gluggi sem við erum að tala um — já, það er alveg rétt, þetta er ekki á sama degi. Þetta gengur út á aðlögun og sveigjanleika og þetta er nákvæmlega með þann eina tilgang að börn og foreldrar og skóli geti áttað sig á stöðunni og síðan hvort barn er að taka framförum, hvort einhverju þurfi að breyta.

Það er allt í lagi að leyfa þessu að fara af stað með aðeins meiri jákvæðni. Það er sjálfsagt að koma með nefndarálit og gagnrýni en það er leiðinlegt, eftir öll þessi ár sem búið er að vinna í þessu og af okkar helstu sérfræðingum, að vera nánast búin að tala þetta niður í núllið og kannski bara af því að það er öðruvísi gluggi, af því að þetta er ekki á sama degi, af því að þetta er ekki í 10. bekk. Þarna er bara mikið meira undir. Ég kalla eftir smásanngirni og það er óþarfi að gefa frat í allt, líka það sem hefur verið gert á vakt hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem vann þetta virkilega vel og lagði mikið í þetta. Það er verið að gefa frat í þetta alveg niður í kjarnann. Það er alger óþarfi. Ég veit að það er kannski eitthvað sem hv. þingmanni finnst í lagi með þetta. En fyrr mega nú vera úrtölurnar. Fyrr má nú vera neikvæðnin; að leyfa þessu alla vega ekki með jákvæðni að fara í prufukeyrslu og sjá hvað kemur út úr þessu.