grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Auðvitað er þetta að fara í hártoganir með það hverjir koma fyrir nefndina. Þeir sem komu fyrir nefndina voru líka Samtök atvinnulífsins, sem eru þá fyrir ótal mörg fyrirtæki. Auðvitað förum við ekki nákvæmlega í það en ég gagnrýni samt að það voru fleiri sem komu fyrir nefndina sem voru ósátt við margt í þessu, þennan samræmda hluta, og það að ekkert tillit sé tekið til þess, núll, er eitthvað sem menn ættu að hugsa um varðandi lýðræði.
Spurningin með lesferilinn: Er hann samræmdur? Lesferill er þannig að það er ekkert undir í honum, ekkert undir, enginn samanburður á einu né neinu. Hann er í raun ekki samræmdur af því að hann gæti borist á milli, kennarar hafa aðgang að honum þegar þeir vilja. Ef við ættum að fara að bera skóla saman á honum einum þá er hann fallinn um sjálfan sig sem slíkt tæki. Hann getur verið ágætistæki í að meta leshraða og tengsl leshraða við lesskilning eru þekkt. Það eru ýmis áhöld um það hvað fólki finnst um það hvort lesferillinn sé samræmdur eða ekki en á meðan hann er opinn í þennan tíma og eins og það sem almennt er talað um sem samræmt mat þá væri ekki hægt að tala um hann sem samræmdan, því að vissulega er hann þannig að það er sama próf lagt fyrir ár eftir ár til að stuðla að réttmæti og áreiðanleika.