grunnskólar.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir málefnalegar og góðar spurningar. Er hægt að meta öðruvísi heldur en með samræmdu lokamati? Ég myndi segja að það væri svona réttasta og besta leiðin til þess. Auðvitað eru til fleiri leiðir, mögulega. Að mæla það sem námskrá kveður á um, að mæla hæfniviðmiðin, getur verið flókið en það er samt sem áður besta leiðin og ég hef sjálfur einmitt útbúið þannig mat núna úr núverandi námskrá og það hefur bara virkað ágætlega.
Síðast varstu að spyrja um? (Gripið fram í.) Já, einmitt. Það er bara þannig að það er í mannlegu eðli að ef þú veist að það er eitthvað undir, að það er verið að fara að meta þig með einhverjum hætti, það hefur bara verið sýnt fram á með rannsóknum og tilraunum að ef fólk kemst í upplýsingar er það líklegt til að nýta sér þær ef það er verið að meta vinnu þess eða árangur. Kennarar eru þar ekkert á öðrum stað heldur en aðrir í samfélaginu. Það er bara þannig. Og hvað er að óttast? Þeir óttast mögulega einhvers konar dóm eða eitthvað slíkt sem ætti ekki að vera og ég held að ég deili því alveg með hv. þingmanni að það væri ekki gott.