grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir að mæla fyrir okkar ágæta áliti minni hlutans í þessari nefnd. Nú hefur farið töluverð vinna í að velta þessu fyrir sér. Þótt einhverjum kunni að virðast þetta mál vera í einhverjum skilningi léttvægt eða einhvers konar útfærsluatriði sem kemur innan úr kerfinu sem við eigum bara meira og minna að samþykkja óbreytt, þá vil ég samt vekja athygli á því að hér er undir auðvitað undirstaða framtíðar landsins sem er skólakerfið. Í því sambandi, þótt manni sé ekki heimilt, virðulegur forseti, að bregða upp gröfum í pontu, þá getum við séð fyrir okkur graf sem er til, þetta er graf úr raunveruleikanum, þar sem þú ert með tímapunkt sem er árið 2009 þar sem skólaeinkunn og niðurstaða PISA-kannana er á sama stað. Um þetta leyti detta samræmdu prófin út og það sem maður sér gerast þá er að skólaeinkunnin að tölunni til hækkar og hækkar með árunum á meðan raunverulegum árangri í PISA-könnunum fer hrakandi. Þetta er þróun sem má segja að byrji að vera í ákveðnum veldisvexti í raun og veru eftir hrun. Eftir hrun hefur árangri okkar farið mjög hrakandi í skólakerfinu.
Með því að benda á að þarna hafi samræmdu prófin verið tekin úr gildi þá er ég ekki að segja að það sé eini þátturinn. Það er sannarlega fjöldi þátta sem veldur því hvernig er komið fyrir skólakerfinu okkar. Það er mjög umdeilt hver er aðalorsökin. Við getum nefnt auðvitað mjög margt. Við getum nefnt snjallsíma, við getum nefnt fordæmalausan innflytjendastraum sem er sannarlega að valda óviðráðanlegu álagi í skólakerfinu. Við getum nefnt spekileka úr kennarastétt, breytt atvinnulíf, agaleysi. Sumir nota orðið aumingjavæðing þótt ég viti ekki hvort það eigi við, en það er eitthvert hugarfar líka þarna undir. Það eru mjög margir þættir undir sem valda því að skólakerfið er á þessum stað. En einn af þáttunum sem við sjáum að er þarna þegar þessi þróun byrjar, þegar raunverulegum árangri hrakar og skólaeinkunn hækkar, er sannarlega sá að við hættum að vera með þetta samræmda námsmat. Við verðum að hafa þetta samræmda námsmat.
Með þessu frumvarpi er boðað að það standi til að bera þetta námsmat á borð. Eins og hv. þm. Jón Pétur Zimsen rakti ágætlega þá eru margir þættir sem valda því að við höfum áhyggjur af því að þetta meinta samræmda námsmat, eins og hann orðaði það svo skemmtilega, sé ekki raunverulega samræmt. Það er þessi fjögurra vikna gluggi og að sönnu eru ýmis kerfi sem nota svona tímaramma og glugga til að framkvæma þetta. En ég held að flestir sem hafa komið fyrir nefndina séu á einu máli um að auðvitað rýri það að einhverju leyti undirstöðu þess að þetta sé raunverulega samræmt mat að hafa þennan fjögurra vikna glugga.
Síðan eru þetta alls konar tæki. Kennarar vita að hluta til, eins og við höfum rætt hér, hvaða próf eru lögð fyrir. Matstækin eru of fjölbreytt, einhver lýsti þeim eins og svissneskum vasahníf, þ.e. þetta eru mörg tæki í stað þess að vera þetta eina sannkallaða samræmda námsmat, samræmda próf. Þetta eru ekki bara við sem erum að segja að það séu efasemdir uppi um það hvort við séum að fá fram alvöru samræmt námsmat. Þetta eru ekki bara við sem erum að segja þetta, eins og mér finnst kannski tónninn vera hjá hv. þm. Kolbrúnu Baldursdóttur. Hvort sem það er Viðskiptaráð eða þeir aðilar sem við fengum síðan loks fyrir nefndina eða t.d. Meyvant Þórólfsson, prófessor emeritus í námskrárfræði sem veit sínu viti, þá eru menn á einu máli um að það sé vafa undirorpið hvort þetta sé raunverulega samræmt námsmat.
Ef við lítum á þetta frumvarp, eins og menn hafa rakið hérna, er það tvískipt í raun og veru. Það er annars vegar þetta samræmda námsmat sem lengi hefur verið kallað eftir og svo matsferill. Við gerum ekki athugasemdir við matsferilinn í neinum veigamiklum atriðum. Hann er sjálfsagt frábært tæki til að fylgjast með framvindu nemenda, innra mat og svo kemur þessi matsferill. En úr því að hér kemur hv. framsögumaður nefndarálits meiri hlutans, Kolbrún Baldursdóttir, og nefnir það að einhvers staðar við ystu sjónarrönd megi sjá glitta í frumvarp sem eigi að lúta að framhaldsskólum, þá hafa framhaldsskólarnir lengi bent á að þeir séu í standandi vandræðum með að taka með sanngjörnum hætti inn í skólana á grundvelli þeirra einkunna sem þeir fá, sem eru háðar verðbólgu. Það er staðreynd. Það er boðað að síðar meir komi sérstakt frumvarp sem eigi að leysa þetta. En þá spyr ég: Af hverju er þetta tvennt þá saman? Af hverju erum við þá með þennan matsferil og þetta meinta samræmda námsmat saman? Úr því að það ríður svo á að hafa þetta aðskilið mál, þ.e. með framhaldsskólana, af hverju á þetta tvennt þá heima saman, fyrst að við gætum alveg eins skipt þessum málum öllum upp?
Mér býður í grun, því miður, að menn kunni ekki við að hafa þetta sem sérstakt mál vegna þess að þá yrði lýðum ljóst hve raunverulega rýrt í roðinu þetta er. Þetta er ekki samræmda námsmatið sem fólk er að kalla eftir. En af því að það er vafið inn í þennan matsferil sem flestir gera ekki athugasemd við þá einhvern veginn sitjum við uppi með þetta ósamræmda námsmat í grunninn eins og margir telja í stað þess að fá raunverulegt samræmt námsmat. Svona pólitískt þá geri ég athugasemdir við þetta. Pólitískt þá finnst mér það ekki til fyrirmyndar að blanda þessu svona saman og gera svo sérstakt mál úr því að síðar meir komi þetta mál með framhaldsskólana þó að vel að merkja sé mjög áríðandi að það gerist.
Ég bendi líka á, í því samhengi að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson gerði lítið úr þessum áhyggjum okkar af samræmda námsmatinu í ljósi þess að síðar meir komi eitthvað fyrir framhaldsskólana, að það er ekki eini tilgangur samræmds námsmats að fá þetta fram með framhaldsskólana. Það hefur alveg sérstakan og afmarkaðan tilgang að hafa raunverulegt samræmt námsmat óháð því hvað framhaldsskólarnir vilja og segja.
Annar þáttur í þessu máli hérna rétt í lokin, ég ætla ekki að tala of lengi hérna þótt ég hafi gert núna ákveðnar pólitískar athugasemdir við þetta. Ég tel ekki eðlilegt að fara í gegn með þetta mál eins og það er núna. En annað sem maður hefur merkt í þessari umræðu og tengist þessum málum sannarlega er það sem hefur líka margoft verið rætt, þ.e. þessi viðkvæmni með að birta gögn. Þar vegast ýmis sjónarmið á, sannarlega, um það hvort við eigum að birta gögn. Í því sambandi eru margir sem segja: Við þurfum í raun og veru ekki að birta gögn um ákveðna skóla vegna þess að út frá lýðfræðilegum þáttum, hvort sem það er hlutfall innflytjenda eða menntun foreldra eða staðsetning skólans, þá getum við bara sagt fyrir fram — þetta sjónarmið heyrist — hver niðurstaðan er í þessum skólum. Þess vegna þurfum við í raun og veru ekkert að vera að birta þetta.
Viljum við ekki fá það fram? Viljum við ekki fá það fram að einhverju leyti þótt það þýði ekki að við birtum nákvæmar einkunnir hvers og eins skóla? Við hefðum þá einhver opinber gögn vegna þess að núna erum við að mörgu leyti alveg í myrkri með það. Við vitum ekkert, við getum nefnt einstaka skóla en við vitum ekkert hvernig árangurinn er þar. Það hefur mjög lengi verið þannig. Við erum með mjög gömul gögn. En þetta eru engu að síður opinberar stofnanir, skattgreiðendur, útsvarsgreiðendur fjármagna þær en hafa enga leið til að vita þetta. Því er svarað til með að við þurfum ekkert að vita þetta, að við vitum þetta nú þegar. Þá spyr ég: Væri ekki lýðræðislegt eða væri það ekki mögulega framfaraskref að opinbera einhvern hluta af ástandinu? Ef við viljum hafa skólakerfið sem þetta jöfnunartæki sem við höfum talað um, að sama hvar þú alist upp þá eigirðu rétt á góðri menntun — ef menn fallast á að þetta sé sannarlega misgott eftir hverfum þá er það kannski eitthvað sem við viljum bara fá fram. Það er alla vega sjónarmið sem ég vil benda á hérna. Viljum við ekki bara fá það fram til þess að geta brugðist við og til þess að almenningur væri meðvitaðri um það í stað þess að þetta sé einhver óljós tilfinning fólks?
Það eru margir þættir í þessu en ég held að grunnurinn sé þessi, að uppi er grafalvarleg staða í íslensku menntakerfi. Nærri helmingur drengja og, ef ég man rétt, 32% stúlkna við lok grunnskólagöngu eru, eins og PISA-kannanirnar koma út, ekki fær um að lesa sér til gagns. Þau eru ekki með það sem við getum kallað almennilegan lesskilning þegar þau útskrifast úr grunnskóla. Þessi árangur er að verða verri og verri. Þess vegna finnst mér vert að benda á og taka undir það sem hv. þm. Jón Pétur Zimsen segir: Ef menn eru tilbúnir að taka mið af því sem við erum að benda á í þessu áliti, t.d. að treysta sér til að innleiða raunverulega samræmt mat við lok grunnskólagöngu, sem virðist alveg sérstök viðkvæmni fyrir af einhverjum ástæðum, jafnvel vegna þess að menn grunar að þá fari framhaldsskólarnir að nota eitthvað annað eins — samt er fólk að segja hérna, eins og hv. þm. Kolbrún Baldursdóttir, að skólarnir geti samt farið að nota þessi gögn sem mér fannst undarlegt að heyra vegna þess að við höfum verið svolítið skýr með það að það sé ekki staðan með þessi gögn. Þá segi ég: Hvers vegna þá ekki að innleiða raunverulegt samræmt lokapróf eða einhvers konar almennilegt samræmt mat við lok grunnskólagöngu? Það er líka annar þáttur í þessu. Mat í 9. bekk er ekki það sama og í 10. bekk. Ég skil ekki viðkvæmnina við að hafa það í 10. bekk og af hverju menn þrástagast á því að vera með þetta í 9. bekk. Allir sem hafa verið í grunnskóla, og ég var nú örugglega nýlegast í grunnskóla af þeim sem hér eru, muna það að að sjálfsögðu gjörbreytist fólk frá 9. bekk til 10. bekkjar. Þannig að raunverulega niðurstaðan úr skólakerfinu birtist okkur í 10. bekk og það stendur ekki til að hafa samræmt námsmat í 10. bekk. Það er mögulegt á grunni þessa að gera það en það er ekki áætlunin eins og gengið er út frá. Það er gert ráð fyrir möguleikanum en það er ekki planið, svo maður tali með tungutaki Samfylkingarinnar. Á þessu lýk ég máli mínu.