156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

grunnskólar.

97. mál
[17:07]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna eða vangaveltuna. Ég ætla að byrja á athugasemdinni um 9. og 10. bekk. Það er alvanalegt í skólum almennt að við námslok sé lagt eitthvert endanlegt mat á árangur nemandans. Það er ekki tilviljun að þannig hafi þessu verið háttað frá örófi alda, líklega frá upphafi skólahalds, að við námslok gangi menn út frá því að eðlilegt sé að leggja eitthvert mat á endanlegu útkomuna ef við lítum á þetta sem færibandsframleiðslu, sem er ekki endilega falleg hugsun en það er kaldur veruleikinn. Hitt er líka kaldur veruleikinn að þegar framhaldsskólar taka nemendur inn á grundvelli árangurs þeirra í grunnskóla þá horfa þeir til námsárangurs vegna þess að þeir vilja að nemendur sínir hafi sem bestar líkur á því að skara fram úr í námi þegar þeir koma inn í skólann. Ég vísa því á bug að þar sé verið að handvelja nemendur eftir einhverjum annarlegum mælikvörðum. Við þurfum á því að halda í íslensku menntakerfi að framhaldsskólarnir geti tryggt að nemendur sínir geti skarað fram úr. Við þurfum líka að hafa í huga þegar tölfræðin birtist okkur um að meðalnámsárangur sé sífellt verri er þar inni að sífellt færri skara fram úr og árangur þeirra sem sannarlega skara fram úr er ekki jafn framúrskarandi og áður fyrr. Þetta kemur fram í niðurstöðum PISA-kannana. Þetta er líka alvarleg þróun. Eins grimmilega og það hljómar getum við ekki endilega bara hugsað um hinn ágæta meðalmann eða þá sem eiga erfitt heldur þarf líka að huga að þeim sem eru framúrskarandi. Þeir eiga líka rétt á sanngjarnri málsmeðferð þegar komið er í framhaldsskólana.