156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

grunnskólar.

97. mál
[17:11]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Já, ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvar síðara sinni. Ég ítreka að okkar gagnrýni snýr að því sem hv. þingmaður heldur fram, að hér sé sannarlega um að ræða samræmt mat með stöðluðum prófum. Við höfum bent á að í þessu finnst okkur ekki nægilega afgerandi að þetta verði sannarlega samræmt eftir þeim aðferðum sem þarf að styðjast við til þess að þetta geti talist raunverulega samræmt. Við áttum okkur vel á því að stefnan bjóði almennt í grófum dráttum mögulega upp á eitthvað sem talist geti samræmt en við bendum á að til þess að svo geti verið í raun og veru þurfi þetta að vera afgerandi með ákveðnum hætti.

Að hinum þættinum sem við vorum að ræða í sambandi við að hér sé fjölbreytt samfélag nemenda, fjölmenningarsamfélag og annað eins, þá er ég ekki sammála að til þess að mæta því eigi á heildina litið að lækka rána, ef við getum orðað þannig, til þess að allir komist af, heldur finnst mér að við eigum áfram að gera þessar sömu kröfur til allra nemenda um að skara fram úr og gefa þeim kost á því í stað þess að búa til einhvern veginn meira bómullarumhverfi til að mæta þeim. (Forseti hringir.) Það er ekki besta leiðin að mínu mati til að mæta breyttum veruleika heldur að halda áfram að gera kröfur.