156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

grunnskólar.

97. mál
[17:14]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég verð að taka undir þetta og á meðal þeirra fjölmörgu þátta í þessari vinnu sem við höfum bent á að orki tvímælis þegar kemur að því að tryggja að þetta verði samræmt námsmat á línuna er að þarna sé talað um valin hæfniviðmið. Það er meiri háttar útfærsluatriði hvernig það verður gert og einmitt vafamál hvernig við erum í raun og veru að fylgja námskrá ef eitthvað er handvalið úr námskránni þegar til kastanna kemur. Þá þarf annaðhvort að endurskoða námskrána eða breyta þessari áherslu eins og ég sé þetta utan frá. Ég er náttúrlega ekki langreyndur kennari eins og hv. þm. Jón Pétur Zimsen og þakka enn á ný fyrir hans mat á þessu og innsýn, að bera hana hér á borð.

Í sambandi við jafnræðið þá hefur verið á það bent í þessari vinnu með beinum hætti, hvort sem það er í umsögnum eða heimsóknum til nefndarinnar, gott ef það er ekki alla vega Viðskiptaráð Íslands sem leggur á það mikla áherslu, að nemendur á Íslandi búa nú við þann veruleika, eins og ég nefndi hér áður, að það er altalað að gæði skólanáms og árangur í skólum er ekki jafn á milli staða. Þetta er altalað. Liggur þetta fyrir einhvers staðar? Kannski í einhverjum gömlum gögnum. Við getum reynt að álykta af þeim hver staðan er núna en þetta er altalað og við þessu er gengist. Staðan í íslenska skólakerfinu er því á þessari stundu, eins og ég tel óhætt að fullyrða, ekki sú að jafnræðis sé gætt, þ.e. fólki á Íslandi er mismunað með gæðum náms út frá búsetu. Það er staðan á Íslandi í dag.