156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

grunnskólar.

97. mál
[17:18]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og tek fram að það sem ég skynja í málflutningi hv. þingmanns er að honum er annt um menntun barna. Ég skynja áhyggjur hans og það sem hann veltir hér upp er að hann vill stuðla að því að börnin okkar nái árangri í skólakerfinu, bæði þau sem standa höllum fæti og þau sem vilja skara fram úr. Ég er hjartanlega sammála þessum grunnmarkmiðum hv. þingmanns og ég tel, og ekki bara ég heldur líka menntamálaráðuneytið, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og sveitarfélög í landinu, að þetta frumvarp muni einmitt hjálpa skólakerfinu við að styðja börnin okkar í að ná árangri, hvort sem þau þurfa viðbótarstuðning eða erfiðari áskoranir. Það er mín staðfasta trú.

Það sem ég skynja líka í áhyggjum þingmannsins varðar inntöku í framhaldsskóla. Ég skil það sjónarmið líka mjög vel. Hv. þingmaður leggur áherslu á jafnræði, að verið sé að leggja mat á nemendur í framhaldsskóla út frá samræmdum mælikvörðum. Mig langar að spyrja; annars vegar erum við með þennan Matsferil og þetta samræmda mat — já, af því að hv. þingmaður kom inn á viðkvæmni fyrir bekkjum og af hverju þetta er í 9. bekk en ekki í 10. bekk þá var því breytt með það í huga að þegar við förum í þetta samræmda mat þvert yfir skólana þá verði sveigjanleiki og svigrúm innan skólans til að bregðast við þeim upplýsingum sem fást. Ef nemandi í 9. bekk sýnir fram á að hann skorti lesskilning, stærðfræðiþekkingu eða einhverja aðra þætti þá hafi skólinn tækifæri til að bregðast við því. Það var hugmyndin með því að færa þetta framar. En eftir stendur: Hvaða upplýsingar hafa framhaldsskólarnir?

Mig langar einfaldlega að spyrja, út af því nú hefur verið boðað nýtt frumvarp varðandi inntöku í framhaldsskólana og við spurðum Viðskiptaráð um hvert væri hið fullkomna kerfi: Ef við værum líka búin að leggja fram tillögur fyrir framhaldsskólann varðandi þætti til að taka inn, myndi hv. þingmaður annars styðja aðra þætti frumvarpsins; Matsferilinn og samræmt mat sem byggist á því að geta brugðist við færninni í 9. bekk svo að við getum lagað hana? (Forseti hringir.) Snýst þetta fyrst og fremst um framhaldsskólana? Það er það sem ég er að reyna að setja fingurinn á.