grunnskólar.
Já, ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Svarið er kannski ekki einhlítt. Við bendum á ákveðna annmarka í þessu en í víðum skilningi er það sannarlega veigamikið áhyggjuefni að ekki sé verið að leysa úr þeirri stöðu. Það er náttúrlega bara tvískipt. Þegar 10. bekkingar útskrifast úr grunnskóla, hver er staðan hjá þeim innbyrðis ef við berum saman skóla og hver er staða þeirra gagnvart framhaldsskólunum? Ég held að hvort tveggja hafi sjálfstætt gildi, að við vitum hvernig skólarnir standa innbyrðis, alla vega að kerfið viti það, og að ekki ríki um það algjör leynd. Mér finnst mikilvægt að matið fari fram við lok skólans vegna þess að eins og ég benti á er ólíkt ástand sem mætir nemendum í 9. bekk og 10. bekk. Þau eru bara í öðru hugarástandi og eru að hugsa um framtíðina. Það var spurningin, hver áherslan væri og hvort maður myndi síðan styðja hina þættina. Við höfum sagt það mjög skýrt og ég tel Matsferilinn, eins og hann heitir, alveg til bóta. Það er bara gott að fólk geti séð viðvörunarmerki koma fram snemma ef nemandinn sýnir þess merki að vera ekki alveg að ná tökum á námsefninu. Það er sannarlega mikilvægt. En við höfum áhyggjur af því, og þess vegna erum við að berjast í þessu, að þetta sem eigi að vera samræmt námsmat reynist ekki vera tæki eða umgjörð sem býður upp á raunverulega samræmt námsmat.