156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

grunnskólar.

97. mál
[17:36]
Horfa

Frsm. minni hluta allsh.- og menntmn. (Jón Pétur Zimsen) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir svar sitt. Ég vil spyrja hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson hvað honum finnist um það að í Matsferli séu aðeins valin hæfniviðmið en ekki öll hæfniviðmiðin, því að það er hægt að mæla miklu fleiri á einfaldan hátt heldur en bara valin hæfniviðmið. Svo vil ég líka spyrja hann um það hvort hann telji, miðað við stöðuna eins og hún er í dag, að við útskrift 10. bekkjar sé jafnræðis gætt, hvort nemendur sem leggi á sig ákveðið mikið og útskrifast síðan úr sínum grunnskóla sitji allir við sama borð þegar einkunnir eru gefnar. Ég vil spyrja þessara tveggja spurninga, hvað honum finnist um valin hæfniviðmið inni í þessum meinta samræmda Matsferli og svo hitt.