grunnskólar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Annars vegar varðandi valin hæfniviðmið þá heyrði ég það einmitt í ræðu hans hér áðan að hann hefur sjálfur útbúið samræmd próf út frá námskránni þar sem flest hæfniviðmiðin voru undir. Er þetta ekki annað orðalag yfir valin hæfniviðmið? Það er alla vega það sem ég heyri þegar hann segir þetta. Það er erfitt í svona frumvarpi að segja að öll hæfniviðmiðin verði undir, alveg eins og það væri erfitt fyrir hv. þm. Jón Pétur Zimsen að standa í pontu og segja að hann hefði útbúið próf sem gætti að öllum hæfniviðmiðum. Markmiðið er að sjálfsögðu, eins og hefur komið fram, að hér er verið að stíga fyrstu skrefin varðandi fyrstu námsgreinarnar með nýtt verkfæri sem getur vaxið og dafnað. Við getum haldið áfram að skapa skapandi lausnir í kringum þetta verkfæri og þetta er frábært fyrsta skref til að stíga. Þess vegna styð ég frumvarpið. Út frá því varðandi valin hæfniviðmið þá sýni ég því skilning á þessu stigi og svo mun það einfaldlega aukast, þess fyrir utan er erfitt að fullyrða að öll hæfniviðmið verði metin inni í þessum ferli.
Varðandi jafnræði inn í framhaldsskólann þá skiptir þetta miklu máli. Ég held að samræmda matið og Matsferillinn muni hjálpa stjórnvöldum og sveitarfélögum að stuðla að því að skólaeinkunnir taki meira mið af raunfærni nemenda, því að við munum fá skýrari gögn. Við munum fá tíðari gögn, við munum fá betri stöðu á nemendahópi ólíkra skóla og munum sjá þessi frávik betur en við gerum í dag.
Ég væri til í að ræða þetta enn lengur við þingmanninn og vil þakka honum fyrir góða umræðu hér í dag. Ég heyri að hann brennur fyrir málaflokknum þó að við séum ekki endilega sammála um þær lausnir sem er verið að leggja á borð. Ég treysti því að þetta verði gott fyrsta skref inn í bættan veruleika menntakerfis á Íslandi. Ég heyri það af vettvangi að það er kallað eftir þessu og því styð ég þetta frumvarp.