grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem átt hefur sér stað hér um þetta mál og fagna því mjög að það sé komið á rekspöl og við séum við það að fara að afgreiða það. Það hefur verið unnið að því í töluverðan tíma og ég stóð í þeirri meiningu á síðasta kjörtímabili að ég fengi þetta inn í nefndina mína á síðasta þingi en svo varð ekki því að það kjörtímabil kláraðist ekki, ekki full fjögur árin. Vorum við þá búin að undirbúa okkur svolítið í allsherjar- og menntamálanefnd með því að heimsækja Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og kynna okkur eins og hægt er þessa matsferla og þá vinnu og ég verð að segja að ég var mjög hrifin af þeirri vinnu. Ég er nokkuð viss um að þarna sé mikið af hæfu fólki að starfa við að þróa þessa matsferla. Varð ég þar af leiðandi mjög spennt fyrir því að fá þetta mál til umfjöllunar og umræðu í nefndinni.
Ég var hérna við 1. umræðu þar sem strax komu fram ákveðnar ábendingar og án þess að hafa lesið í gegnum þær umsagnir sem borist hafa en heyrt aðeins af þeim þá var ég náttúrlega að vona að nefndin myndi ná utan um þetta heildstætt með því að gera á frumvarpinu einhverjar þær breytingar sem gætu endurspeglað þau sjónarmið sem höfðu verið uppi. En svo virðist ekki vera að öllu leyti.
Ég fagna því engu að síður málið sé hingað komið. Hafandi setið hérna á þingi í svolítinn tíma þá á ég von á því, þrátt fyrir að hér séu lagðar fram mjög góðar breytingartillögur í nefndaráliti minni hlutans, að meiri hlutinn felli þær breytingartillögur miðað við í umræðuna í dag og bara almennt miðað við það sem gengur og gerist hér á þinginu. En það hefði verið frábært ef hægt hefði verið að ná utan um þessi sjónarmið í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. En ég ætla að ítreka að það er engu að síður ofboðslega mikilvægt að þessi matsferill komist á. Mér finnst ég sjálf bera ákveðna ábyrgð á því, virðulegur forseti, að hafa hér heimilað á sínum tíma að taka út samræmdu prófin. Það var bráðabirgðaákvæði sem við heimiluðum að færi inn í lögin að beiðni þáverandi hæstv. ráðherra vegna þess að það hafði í tvígang, held ég örugglega frekar en þrígang, misfarist að leggja prófin fyrir, það voru tæknilegir örðugleikar og miklir örðugleikar sem voru í þáverandi Menntamálastofnun við að framkvæma þetta allt saman. Við stóðum frammi fyrir því að samþykkja þessar breytingar frá þáverandi hæstv. ráðherra og okkur fannst einhvern veginn ekki vera hægt að bregðast við með öðrum hætti en að heimila það að falla frá þessu ákvæði í grunnskólalögunum um samræmdu prófin í einhvern tíma, enda var okkur þá sagt að þessi matsferill sem hér liggur loksins fyrir væri í mikilli vinnslu og þetta væri allt að bresta á. En síðan er liðinn töluverður tími og það er auðvitað svakalega miður að við séum ekki komin lengra en þetta og að okkur hafi ekki tekist að vinna hraðar. Ég get sagt það, því það er alltaf auðveldara að líta í baksýnisspegilinn og segja eitthvað eftir á, að ég held að það hafi verið mistök hjá okkur að veita ráðherra þessa heimild til að geta fallið frá samræmdum prófum. Ég held að það hefði farið miklu betur á því að halda áfram með þau próf sem þá voru til staðar, á sama tíma og verið væri að þróa þennan nýja matsferli sem hér er kominn.
Það sem ég les út úr nefndarálitum meiri hluta og minni hluta og umræðunni hér í dag er kannski að einmitt sambland af þessu hvoru tveggja sé það sem hefur verið óskað eftir. Ég er alveg sannfærð um það að matsferillinn sem núna er verið að þróa sé miklu betra tæki heldur en það sem við vorum einu sinni með, sem var bara lokapróf í 10. bekk, samræmt lokapróf í 10. bekk. Matsferillinn, eins og honum hefur verið lýst fyrir mér og þetta frumvarp á að ganga út frá, er til þess gerður að búa til tæki og tól fyrir skólana, fyrir foreldrana og fyrir kennarana til að meta árangur nemenda statt og stöðugt og þá, eins og við höfum fengið kynningu á hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, þurfa líka að vera til tæki, það þurfa að vera námsgögn og það þurfa að vera til leiðbeiningar fyrir kennara til að bregðast við því aðalmálið er auðvitað að nemandinn fái sem mest út úr þessu og að við séum að skila góðum einstaklingum út úr grunnskólunum. Ég hef alveg mikla trú á matsferlinum hvað þetta varðar.
Að því sögðu þá þurfum við kannski að gera meira en bara það og það er kannski þessi samræmdi hluti. Mér fannst vera farið ágætlega yfir það hér í ræðum áðan að frá því að við hættum með samræmdu prófin í 10. bekk — ég er nú ein af þeim sem tóku slíkt próf og þá skipti það rosa miklu máli um það hvaða framhaldsskóla þú færir í — og framhaldsskólar fóru að horfa á skólaeinkunnir þá hefur átt sér stað gríðarleg einkunnaverðbólga. Sú staðreynd liggur fyrir og ég held að flestir geti tekið undir það. Á sama tíma höfum við líka heyrt kennara og skólastjórnendur jafnvel segja sögur af því að þeim sé bara næstum því mútað eða hótað að barnið þurfi að fá hærri einkunn, skólaeinkunn, til að eiga möguleika á að komast inn í einhvern af vinsælustu skólunum. Þetta er auðvitað ekki gott fyrirkomulag þannig að ég skil líka mjög vel þau sjónarmið að það sé ákveðin samræming í því fólgin og sanngirni að allir sitji við sama borð þegar kemur að því að taka slík próf. Það sé það sem framhaldsskólarnir horfi á. Ég átta mig líka á því og hef alveg heyrt þá umræðu að framhaldsskólarnir séu breyttir og það eigi svolítið að hætta að taka inn út frá þessu og auðvitað getum við ekkert metið einhverja allsherjarhæfni og -færni og þekkingu nemenda út frá einni punktstöðu. Ég skil það líka, það er mjög „valid“ sjónarmið, virðulegur forseti. Engu að síður þá líður mér stundum eins og við höllum okkur allt of langt í eina átt og það sé aðeins farið í þá átt að segja að þetta sé svo erfitt fyrir börnin að taka þessi próf, þetta sé svo mikið álag á þau og mikil ábyrgð sett á þau að þurfa að standa sig rosalega vel á einu prófi. Já, það kann að vera og auðvitað eru einstaklingarnir mismunandi og börnin þar af leiðandi líka og standa sig mismunandi vel undir því álagi. En er það þá þannig að við eigum bara að hætta að setja slíkt álag á börnin? Er það í alvöru það besta í stöðunni? Ég er ekkert svo viss um það.
Ég held að það hefði alveg verið hægt að horfa á báða þessa þætti, annars vegar mikilvægi símatskerfis í matsferlinum og hægt að nota tæki og tól til að bregðast við í kjölfarið og hins vegar að það sé bara allt í lagi að börnin taki próf í 10. bekk og það sýni einhvern árangur og það geti mögulega haft einhver áhrif fyrir þá sem eru að keppast við að komast inn í einhverja framhaldsskóla sem eru vinsælastir á þeim tíma.
Að því sögðu, virðulegur forseti, þá ætla ég líka að fá að segja það, þó að við séum hér að ræða þennan afmarkaða þátt sem er námsmatið og hversu samræmt það er eða ekki samræmt og þörfina kannski á samræmdu prófi líka eins og við þekkjum frá því í gamla daga, ef ég leyfi mér að tala með þeim hætti, og ég hef oft sagt það að ég sakna þess mjög að við ræðum ekki meira um menntamál hér á Alþingi. Það er auðvitað ástæða fyrir því. Ástæðan er sú að rekstur grunnskóla og leikskóla er á ábyrgð sveitarfélaganna og það var rétt ákvörðun sem var tekin hér fyrir margt löngu og ég hef verið mjög hlynnt því. Mér hefur fundist eðlilegt að sveitarfélögin sinni nærþjónustunni og ég held að grunnskólar séu það vissulega. En að sama skapi finnst mér að hvorki hæstv. menntamálaráðherra, eða eins og það heitir núna, barna- og menntamálaráðherra, né við sem sitjum hér á þingi getum afsalað okkur ábyrgðinni á gæðum skólastarfs og fært hana alveg yfir til sveitarfélaga. Og ástæðan fyrir því að við ræðum þetta kannski sjaldan hér í þessum þingsal er sú að við fáum iðulega bara hér til umfjöllunar frumvörp og í þessu efni er ekkert rosalega mikið af lögum. Það eru bara lög um grunnskóla og svo eru lög um leikskóla. Svo eru reglugerðir og annað sem ráðherra sjálfur er með en það eru ekkert rosalega mörg tækifæri til að ræða menntamál hér í þingsal. Ég veit ekki hver er besta leiðin út úr því. En mér finnst alla vega núna að við séum komin í miklar ógöngur með kerfið okkar.
Ég veit að maður á alltaf að tala af mikilli varfærni um þessi mál því með þessu er ég ekki að segja að grunnskólarnir okkar séu ómögulegir eða börnin okkar ómöguleg og þau séu engan veginn að standa sig eða kennararnir, alls ekki. Ég er alveg sannfærð um að það sé unnið alveg ofboðslega gott starf í grunnskólum landsins. Ég er alveg sannfærð um að langflestir kennarar séu að leggja sig ofboðslega mikið fram við að kenna nemendum. Mér finnst líka unga fólkið okkar upp til hópa algerlega frábært og hefur margt til brunns að bera og stendur sig oft miklu betur heldur en við sem eldri erum gerðum kannski á þessum árum. En engu að síður eru mælingarnar sem við eigum á þessum gæðum litlar sem engar og þær mælingar sem við þó eigum sýna því miður bara að okkur hrakar mjög.
Ég held að það sem við ræðum hér, námsmatið, geti þar skipt máli. Það skiptir máli að hafa þessar mælingar. Það skiptir líka mjög miklu máli að þær séu samræmdar. Þó að stóra málið sé að þetta sé fyrir hvern og einn nemanda og foreldra og kennara til að geta brugðist við þá þurfum við sem stjórnvald, hvort sem það eru sveitarfélögin eða ríkið eða hæstv. ráðherra, að hafa raunverulegan mælikvarða á skólana. Hvaða skólar eru að standa sig afburðavel? Hvaða skólar eru ekki að gera það? Ekki til að refsa þeim sem eru ekki að gera það heldur einmitt til að læra af því. Hvað er það sem virkar svona vel og hvernig getum við tryggt að allir skólar standi sig vel? Mér finnst einhvern veginn á síðustu árum að metnaðurinn til þess að vera afburðagóður hafa svolítið lagst af. Auðvitað skiptir ofboðslega miklu máli hvernig unga fólkinu okkar líður og hvernig við tökumst á við ýmis vandamál sem upp koma, hvort sem það er einelti eða ofbeldi eða annað, allt þetta skiptir svakalega miklu máli. En mér finnst líka skipta miklu máli að við séum með metnað fyrir því að bjóða upp á fyrirtaksnám, alveg frá því að börn koma inn í leikskóla og þangað til þau útskrifast úr grunnskóla og auðvitað áfram upp í framhaldsskóla og háskóla. Þess vegna finnst mér mikilvægt að við þingmenn tjáum okkur með þeim hætti og ráðherra beri raunverulega ábyrgð á málaflokknum og geti farið inn í málaflokkinn þegar ekki nógu vel gengur og sagt: Hér eru ekki að nást þau markmið sem sett hafa verið með lögunum. Þá þurfum við að gera eitthvað öðruvísi, þá þurfum við að bregðast við.
Virðulegur forseti. Ég nefni þetta nú líka vegna þess að við vitum það á þessum mælikvarða að við erum með eitt af dýrustu grunnskólakerfum innan OECD. Þá fara oft margir að útskýra það með því að við búum í dreifbýlu landi og við séum með litla skóla. Já, já, örugglega allt þetta, en engu að síður erum við með eitt af dýrustu kerfunum og við stöndum okkur illa samkvæmt þessum mælingum. Það er hrópandi ósamræmi í þessu. Nýverið var verið að klára kjarasamninga við kennara þar sem verið er að fara í umtalsvert meiri launahækkanir en gengur og gerist á almennum markaði. Ég er ekki að tala gegn því en við erum þá að setja enn þá meiri peninga inn í grunnskólakerfið okkar. Þá verðum við líka að hafa vissu fyrir því að það skili meiri og betri árangri. Þá ábyrgð getum við ekki sett á kennara eina og sér. Við þurfum að sjá til þess að umhverfið sé með þeim hætti að þeir geti skilað þeim árangri. Það er þá m.a. gert í frumvarpinu sem hér liggur fyrir. Og eins og ég segi er hér örugglega margt gott, margt sem mun hjálpa, en kannski hefðum við getað gengið enn lengra. Það er kannski þannig sem ég skynja umræðuna á hjá hv. þingmönnum sem eiga sæti í hv. allsherjar- og menntamálanefnd hérna í dag, að þeir hefðu viljað taka enn annað skref, ganga aðeins lengra. Ég sé ekki fyrir mér að það verði gert, því miður, að þessu sinni. En þá vil ég hvetja þingheim til að hafa vakandi auga með því hvort ekki sé þörf á að bregðast við því innan stutts tíma því við megum engan tíma missa. Það eru allt of mörg ár liðin þar sem við höfum ekki haft mælingar á gæði skólanna. Eina sem við vitum er að kerfinu okkar hefur hrakað og það er bara ekki nógu gott. Við þurfum öll að bera ábyrgð á því.
Virðulegur forseti. Að því sögðu þá ítreka ég að hér er margt gott og ég fagna því að það sé verið að klára þetta mikilvæga mál. Ég held að það hefði verið hægt að ganga enn lengra og gera enn betur. En þá vil ég hvetja þingheim og auðvitað sérstaklega fulltrúa í núverandi meiri hluta til að hafa vakandi auga með því hvenær og hvort ekki er ástæða til að ganga lengra en hér er gert.