156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[17:55]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, EES-reglur, einnota plastvörur. Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, í því skyni að innleiða 1. mgr. 6. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 904/2019 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið.

Frumvarpið er lagt fram til að uppfylla skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist með aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið en innleiða bar tilskipunina fyrir 3. júlí 2024. Með þeim breytingum sem hér er lagt til er lokið innleiðingu á tilskipun (ESB) 2019/904 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið. Tilskipunin var tekin upp í EES-samninginn í september 2021 en þá þegar hafði stærstur hluti hennar verið innleiddur í íslenskan rétt, með lögum nr. 90/2020 og nr. 103/2021.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í því ákvæði tilskipunarinnar sem lagt er til að innleiða í lög um hollustuhætti og mengunarvarnir er mælt fyrir um gerð og samsetningu tiltekinna einnota plastvara að því leyti að einungis megi setja einnota drykkjarílát og umbúðir úr plasti með tappa eða lok úr plasti á markað ef tappinn eða lokið er áfast vörunni á meðan fyrirhuguð notkun hennar stendur yfir. Ákvæðið var því sett í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að þessir plasttappar og lok endi í umhverfinu og mengi t.d. haf og strendur. Fyrir nefndinni kom einnig fram að þekkt er að örplast komist inn í líkamann um meltingarveg, öndunarveg og að einhverju leyti um húð og benda rannsóknir til að plastagnir hafi mögulega skaðleg áhrif á heilsu fólks. Að mati meiri hlutans er til mikils að vinna að draga úr þessari mengun eftir fremsta megni.

Í þeim umsögnum sem bárust um frumvarpið var stuðningi lýst við efni þess og markmið um að draga úr plastmengun. Fram kom að þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu hafi lítil áhrif enda hafi drykkjarvöruframleiðendur uppfært tækjakost sinn og flestar þeirra vara sem ákvæðið tekur til þegar seldar hér á landi með áföstu loki eða töppum. Mikilvægt sé hins vegar að lögfesta ákvæðið svo að fyrirtæki sem flytji inn slíkar vörur frá innri markaði EES sitji við sama borð, enda hafi tilskipunin þegar verið tekin upp í EES- samninginn. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið. Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom jafnframt fram að allar innfluttar vörur sem falla undir ákvæðið þurfa að uppfylla skilyrði þess, óháð því hvort þær eru framleiddar innan eða utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar leggur til lagatæknilega breytingu sem útskýrð er í nefndaráliti og þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar hér.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir. Halla Hrund Logadóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Undir álit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Guðbrandur Einarsson formaður, Dagur B. Eggertsson, Halla Hrund Logadóttir, Jónína Björk Óskarsdóttir, Ólafur Adolfsson og Sigurður Helgi Pálmason.

Virðulegi forseti. Það er ekki mikið meira um þetta mál að segja og ég held að umræðan hafi verið alveg tæmd hér í sal hv. Alþingis við 1. umræðu þessa máls.