svæðisbundin flutningsjöfnun.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011. Frumvarpið felur í sér minni háttar breytingar á lögunum og er tilefni þess tvíþætt. Í fyrsta lagi er frumvarp þetta flutt til að leiðrétta 3. mgr. 6. gr. laganna en lagt er til að hún verði endurorðuð og færð til betri vegar. Í öðru lagi er frumvarp þetta flutt til að framlengja gildistíma laganna til 31. desember 2030 en lögin falla úr gildi að óbreyttu nú í lok árs 2025.
Virðulegi forseti. Ég mun nú gera nánari grein fyrir breytingum þeim sem felast í frumvarpi þessu. Í 3. mgr. 6. gr. laganna er að finna tilvísun til 200.000 evra sem er það hámark sem flutningsjöfnunarstyrkir til hvers framleiðanda mega aldrei fara yfir á þriggja ára tímabili. Það er með öðrum orðum hámarksstyrkur á þriggja ára tímabili. Evrópusambandið tilgreinir styrkinn sem minni háttar aðstoð sem er tilkynnt af Eftirlitsstofnun EFTA. Styrkurinn er þar af leiðandi ekki tilkynningarskyldur til stofnunarinnar. Hámarkið hefur nú verið hækkað úr 200.000 evrum upp í 300.000 evrur frá 1. janúar 2024. Hér á landi er íslenska krónan lögeyrir skv. 1. mgr. 1. gr. laga um gjaldmiðil Íslands, nr. 22/1968, og á það endurspeglast í íslenskri löggjöf nema veigamikil rök mæli gegn því. Í frumvarpi þessu er því lagt til að í stað þess að geta um 300.000 evrur í lögum verði heildarfjárhæð flutningsjöfnunarstyrkja ákveðin með reglugerð en meginreglur um styrkinn sjálfan ákveðnar í málsgreininni sjálfri.
Í 2. málslið 3. mgr. 6. gr. laganna er kveðið á um aðferð við að umreikna evrur yfir íslenskan gjaldmiðil. Frá 1. janúar 2020 hefur sú aðferð sem kveðið er á um í 2. málslið 3. mgr. 6. gr. ekki verið notuð samkvæmt orðanna hljóðan í framkvæmd, þ.e. ekki er lengur miðað við gengi sem Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, gefur út og birt er í EES-viðbæti við stjórnartíðindi Evrópusambandsins og á vef stofnunarinnar. Í dag er miðað við reglur frá Seðlabanka Evrópu sem birtar eru á heimasíðu Eftirlitsstofnunar EFTA og lagt er til að bætt verði úr og að ráðherra muni birta reglurnar umreiknaðar í gjaldeyri í reglugerð. Í raun er um sömu aðferð að ræða en lagatextinn er ekki í samræmi við veruleikann.
Lög um flutningsjöfnun, nr. 160/2011, hafa almennt staðið undir væntingum. Það er mat Byggðastofnunar, sem fær stuðning í umsögnum um frumvarp þetta frá Samtökum iðnaðarins og Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, að flutningsjöfnunarstyrkir auki samkeppnishæfni framleiðslufyrirtækja á landsbyggðinni sem eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn. Styrkirnir gagnist helst smærri framleiðendum á landsbyggðinni sem búi við hærri flutningsjöfnuð, bæði hvað varðar að koma vörunum frá sér á markað og að flytja til sín aðföng, þ.e. hráefni og umbúðir sem þarf vegna framleiðslunnar. Þá gagnast styrkirnir matvælaframleiðslu sem fer fram á landsbyggðinni en það eru þeir aðilar sem eru að sækja mest í styrkina. Hráefnisflutningar til vinnslu vega þar þungt. Benda má á að framleiðendur á Norðurlandi eystra og Vestfjörðum er að fá stærstan hluta styrkjanna. Hluti af þeim svæðum sem skilgreind eru sem svæði 2 fá því hlutfallslega hærri styrk. Langt er á markað og flutningur oft erfiður vegna færðar og ástands vega á þessum svæðum.
Flutningsjöfnunarstyrkirnir eru mikilvægir fyrir verðmætasköpun á landsbyggðinni og eiga m.a. að styðja við smærri framleiðendur og nýsköpun. Hér er því um mikilvæga styrki að ræða fyrir landsbyggðina og þá landshluta sem ég hér nefndi. Mikil ásókn er í styrkina og hafa umsóknir síðustu ár ávallt verið hærri en fjárheimild ársins, sem er í dag 163 millj. kr., og hefur því þurft að skerða þá fjárhæð sem framleiðendur hafa sótt um. Ein af afleiðingum þess er að smærri aðilar eru að fá lítið sem ekkert framlag úr pottinum. Árið 2023 var gerð breyting á lögunum sem sneri m.a. að því að setja þak á lágmarksstyrkúthlutun, þ.e. að styrkfjárhæð undir 1 milljón króna myndi ekki skerðast. Var þetta gert með það að markmiði að styðja við minni framleiðendur. Á móti var skerðing stærstu framleiðandanna meiri en áður. Ókosturinn við þessa miklu skerðingu er að fyrirsjáanleikinn er ekki til staðar og því erfitt að gera ráð fyrir því í vöruverði til neytenda. Við umræðu um lagabreytinguna árið 2023 komu fram þau sjónarmið að lækka smám saman flutningsstyrki vegna sölu olíuvara og auka á móti framlög til framleiðenda. Það á þó eftir að raungerast.
Í þessu samhengi, virðulegi forseti, legg ég til að gildistími laganna verði framlengdur til 31. desember 2030.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hæstv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umræðu.