svæðisbundin flutningsjöfnun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna á þessu máli. Það eru nokkrar spurningar sem vakna í tengslum við þetta. Það er rétt sem hæstv. ráðherra bendir á hér, að það þurfi að koma til einhvers konar jöfnunar gagnvart fyrirtækjum í framleiðslu á landsbyggðinni til að mæta þessum aukna kostnaði varðandi flutning og fleira því að fyrirtæki á landsbyggðinni búa við hærri kostnað við að flytja vörur til og frá innanlandsmarkaði eða útflutningshöfnum. Staðan hefur breyst og hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir breytingarnar og umræðuna í kringum 2023 þegar breytt var um áherslur í tengslum við minni fyrirtæki, en núna er staðan orðin enn breyttari með tilkomu kílómetragjalds. Mig langaði því að spyrja hæstv. ráðherra hvort búið sé að meta hvort núverandi kerfi sé nægjanlegt til að vega upp á móti áhrifum nýs kílómetragjalds og þá er ég að meina gagnvart í rauninni matvælaframleiðslu og framleiðslu almennt á landsbyggðinni, hvort það hafi verið skoðað. Eins hvort það hafi verið skoðað hvort það þurfi hugsanlega að auka fjárheimildir eða breyta úthlutunarreglum nú þegar þetta kílómetragjald er komið til.