svæðisbundin flutningsjöfnun.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi kílómetragjaldið og breytta stöðu vegna tilkomu breytts kílómetragjalds, hvort áhrifin hafi verið skoðuð, þá er ekki svo, þau hafa ekki verið skoðuð. En þetta er góður punktur eða gott atriði sem hv. þingmaður ber hér upp og það væri vissulega vert að skoða málið. Það sem ber að hafa í huga varðandi þetta er að kílómetragjald er gjald á ekinn kílómetra. Það er líka raunverulega þannig þegar þú ert að keyra og eyða bensíni eða olíu að þú eyðir meiru eftir því sem þú keyrir meira þannig að það má segja að það sé munur á kílómetragjaldi sem er tekið í bensíngjaldi, af því að þú eyðir bensíni þegar þú keyrir kílómetra, og gjaldi sem miðast eingöngu við kílómetra, en hvort það sé munur þar á milli, hvort það séu meiri áhrif af kílómetragjaldinu en núverandi kerfi er vissulega vert að skoða.
Varðandi breytta úthlutun þá er ekki fyrirhugað að skoða það með þeim hætti sem hv. þingmaður nefndi, skildi ég hv. þingmann rétt. En það álitaefni sem ég mun hafa til skoðunar í ráðuneyti mínu og hef beint þeim tilmælum til Byggðastofnunar að skoða er hvort hægt sé að rétta enn frekar hlut minni fyrirtækja á landsbyggðinni án þess að brjóta jafnræðisreglur og fara á svig við styrkjareglur Evrópusambandsins. Hyggst ég skoða það og jafnvel leggja fram frumvarp þess efnis í haust. Það er stóra málið, þ.e. að þetta verði meira fyrir minni framleiðendurna, minni fyrirtækin, heldur en stóru fyrirtækin. Það þarf að skoða það nákvæmlega. Þetta ætti þá að geta ýtt undir frekari nýsköpun á landsbyggðinni og gagnast minni framleiðendum.