156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

svæðisbundin flutningsjöfnun.

176. mál
[18:11]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Það er vissulega rétt að kílómetragjaldið kemur inn á þyngd og þá snýst þetta náttúrlega um þungar vörur sem er verið að flytja á landsbyggðinni. Það er mjög mikilvægt að það sé þá ekki það íþyngjandi að það borgi sig ekki að flytja vörur til útflutningshafnar og á markað. Út á það gengur þetta, að jafna, flutningsjöfnunarstyrkurinn gengur út á það. Þetta er kerfi sem hefur gefist vel, svo það liggi fyrir, og það er vissulega til skoðunar hvort eigi að auka fjármagn til þessa málaflokks þar sem það hefur verið minni fjárveiting heldur en umsóknir. Það kæmi vel til skoðunar en ég lofa engu hvað það varðar.

Það sem er mjög mikilvægt, tel ég, er þessi breyting sem var gerð árið 2023 með það að markmiði að styðja betur við minni framleiðendur. Vissulega var skerðing til stærstu framleiðendanna sem kom á móti en ég hef áhuga á að skoða það frekar að koma enn meira til móts við minni framleiðendur og jafnvel nýsköpunarfyrirtæki án þess þó að skerða jafnræði. Það er mjög mikilvægt. Við verðum að horfast í augu við það að í hinum dreifðu byggðum landsins er mjög mikilvægt að styðja minni framleiðendur og nýsköpun, nýsköpunarfyrirtæki sem hyggja á framleiðslu þar sem er t.d. kostnaður við flutning á markað. Ég get tekið dæmi úr Bolungarvík þar sem er fyrirtækið Arna, stórkostlegt fyrirtæki með mjólkurframleiðslu, sem hefur tekist mjög vel upp. Þeir eru að fá einn hæsta styrkinn varðandi flutningsjöfnun og næsta kúabú við Bolungarvík — Bolungarvík er ekki í þekktu landbúnaðarhéraði. Það er mjög mikilvægt að styðja við svona starfsemi, nýsköpun, þar sem hugvit heimamanna og frumkvöðlar eru að verki þannig að þeir geti virkilega farið og stofnað fyrirtæki á landsbyggðinni. Ég mun taka athugasemdir hv. þingmanns til skoðunar í tengslum við það sem ég mun skoða varðandi frumvarp sem kæmi þá mögulega í haust.