svæðisbundin flutningsjöfnun.
Virðulegi forseti. Frumvarpið sem við erum að ræða hérna um í dag hefur skýrt og einlægt markmið; að stuðla að jöfnum tækifærum til atvinnurekstrar og búsetu um allt land. Það fjallar um svæðisbundna flutningsjöfnun og þá erum við líka um leið að viðurkenna þá einföldu staðreynd að fyrirtæki og einstaklingar á landsbyggðinni búa við hærri flutningskostnað og það er um að gera rétta þann aðstöðumun. Hæstv. ráðherra kom í sínu máli inn á nýsköpun og mikilvægi þess að efla og styðja við stofnun fyrirtækja á landsbyggðinni. Ég tek heils hugar undir það. Ég fagna því að hann ætli að skoða hvað hægt sé að gera. En það er líka einn þáttur sem tengist einmitt því að það sé hægt að stofna fyrirtæki á landsbyggðinni og sé hægt að auka framleiðslu og gera fleira, það er raforkan og samkeppnisstaða fyrirtækja þegar kemur að raforku og tengingum við raforkukerfið okkar. Það er af skornum skammti og ég veit að þetta tengist ráðuneyti hæstv. ráðherra þannig að mig langaði að nefna það hér því að við verðum af verulegum tekjum frá landsbyggðinni vegna skerðingar á raforku.
Ég fagna vissulega þessu frumvarpi og þeirri ákvörðun að hér eigi að framlengja gildistíma laganna um flutningsjöfnun til 2030. Það sendir jákvæð skilaboð, vissulega, að stjórnvöld vilji standa við bakið á framleiðsluiðnaði og atvinnulífi á landsbyggðinni og við öll í Framsókn styðjum það. En það er samt mikilvægt að við látum ekki staðar numið. Hér er verið að laga orðalag og skýra heimildir en það bætir ekki það sem raunverulega skortir, þ.e. nægilegir fjármunir til að markmið laganna nái fram að ganga því raunveruleikinn er að það er einungis hægt að úthluta vegna 34% þeirra óska sem fram koma. Eins og kom fram í máli mínu áðan þá voru á síðasta ári samþykktar styrkumsóknir fyrir um 477 milljónir en fjárheimildir voru aðeins 163 milljónir. Það er spurning hvort það sé vilji fyrir því að láta lögin virka sem skyldi, því ef við viljum raunverulega jafna aðstöðumun og viljum að þessi lög virki þá er mikilvægt að setja fjármagn þar sem viljinn er. Það er eitt að framlengja verkefni en það er annað að fjármunir fylgi og eins að þessar fjárveitingar fylgi þróun flutningskostnaðar því að við vitum öll að hann hefur vaxið mikið á síðustu árum.
Fyrirtæki á landsbyggðinni, hvort sem þau eru í matvælaframleiðslu, í sjávarútvegi eða iðnaði og keppa við fyrirtæki sem staðsett eru nær mörkuðum, búa við hærri kostnað og treysta á flutningsjöfnunarstyrkina til að halda velli. Ég veit að svokallað ETS-kerfi og það gjald hafði líka veruleg áhrif á þau fyrirtæki sem flytja sína vöru sjóleiðis eftir að þau hafa keyrt hana á áfangastað. Þessi styrkur er ekki styrkur til þess að hagnast á, heldur til þess að lifa af og til þess að jafna samkeppnisstöðu fyrirtækja á landsbyggðinni til móts við höfuðborgarsvæðið, halda uppi atvinnu og þjónustu í okkar dreifðu byggðum, sem er alveg gríðarlega mikilvægt. Við vitum það auðvitað að landsbyggðin ber meira af því gjaldi af því að þar er meira keyrt, bæði af fólki og með vörur, og þetta gjald bætist þá ofan á þann flutningskostnað sem þegar hefur skert samkeppnisstöðu fyrirtækja utan höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég vil hvetja ráðherra samgangna og innviða til góðra verka og að grípa til aðgerða. Það er mikilvægt að fjárveitingar til þessarar flutningsjöfnunar endurspegli raunveruleikann. Ef við setjum hámark í evrum en höldum fjárheimildum niðri eru þetta einungis orð á blaði. Við erum með vissar heimildir en við ætlum samt ekki að uppfylla þær. Það er ekki nóg að láta orðin ein standa, það þarf að fylgja þeim eftir í verki og fyrirtækin þurfa stuðning í verki og samfélögin þurfa traust og stuðning til framtíðar þannig að ég hvet hæstv. ráðherra til að berjast fyrir því að fá auknar fjárheimildir í þetta mál og hlutfall styrkja geti a.m.k. aftur farið yfir 50% í stað þess að vera í kringum 30%. Það er forsenda þess að við náum markmiðum laganna og að við styðjum við atvinnuuppbyggingu um land allt, sem ég veit að er vilji hæstv. ráðherra, og að við tryggjum raunverulegt búsetufrelsi og framleiðslu fyrir alla um allt land.