náttúruvernd o.fl.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um náttúruvernd, lögum um Vatnajökulsþjóðgarð og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Með samþykkt laga um Náttúruverndarstofnun runnu Vatnajökulsþjóðgarður og náttúruverndarsvið Umhverfisstofnunar saman í eina stofnun þann 1. janúar síðastliðinn, hún er á Hvolsvelli. Vegna sameiningarinnar hefur legið fyrir að þörf sé á því að gera breytingar á tilteknum lagaákvæðum hinna fyrrnefndu laga til þess m.a. að samræma ákvæði um gjaldtöku, málsmeðferð, þvingunarúrræði, kæruleiðir og eftirlit. Hér er því um að ræða nauðsynlegar breytingar til þess að Náttúruverndarstofnun geti rækt hlutverk sitt og miða að því að samræma regluverk í þágu atvinnulífs og almennings til að auka skilvirkni stjórnsýslunnar.
Frumvarpið er samið í umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu að höfðu samráði við Náttúruverndarstofnun. Áform um lagasetninguna og drög að frumvarpi voru kynnt til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda. Í samráðskafla greinargerðar þessa frumvarps er greint frá umsögnum og viðbrögðum við þeim.
Með frumvarpi þessu er leitast við að samræma lagalega umgjörð þeirrar stofnunar sem gegnir lykilhlutverki í framkvæmd náttúruverndar hér á landi. Með frumvarpinu er þessari nýju stofnun þar af leiðandi settur skýr rammi með samræmdum gjaldtökuákvæðum, annars vegar í náttúruverndarlögum og hins vegar í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð. Mikilvægt er að ekki gildi ólíkar reglur eftir því um hvaða umsjónarsvæði stofnunarinnar ræðir hvað varðar gjaldtöku samkvæmt þessum lagabálkum. Svo er líka mikilvægt að gjaldtökuákvæðin taki mið af þeim breytingum sem orðið hafa við fjölgun ferðamanna hér á landi. Kveðið er á um gjaldtökuheimild stofnunarinnar til innheimtu þjónustugjalda til að standa undir kostnaði sem þjónusta á svæðum í umsjón stofnunarinnar hefur í för með sér, svo sem fyrir bílastæði og salerni. Auk þess er mælt með skýrum hætti fyrir um hvað verður heimilt að reikna inn í upphæð þjónustugjalda og með hvaða hætti þeim skuli ráðstafað.
Þá mælir frumvarpið fyrir um breytingu á skipun svæðisstjórna á svæðum sem friðlýst hafa verið sem þjóðgarður samkvæmt náttúruverndarlögum. Mælt verði fyrir um skyldu ráðherra til að stofna svæðisstjórn en ekki heimild eins og er í lögum í dag. Þá verði skipun svæðisstjórnar fastmótuð og skipuð að lágmarki fimm fulltrúum. Lagt er til að svæðisstjórn skuli skipuð m.a. fulltrúum hlutaðeigandi sveitarfélaga og fulltrúum náttúru- og umhverfisverndarsamtaka og þannig er leitast við að tryggja valddreift stjórnfyrirkomulag í þjóðgörðum. Þessi breyting er að mestu leyti í samræmi við það fyrirkomulag sem verið hefur við lýði í Vatnajökulsþjóðgarði og komin er góð reynsla á.
Enn fremur gerir frumvarpið ráð fyrir breytingu á kæruleiðum í náttúruverndarlögum og lögum um Vatnajökulsþjóðgarð með þeim hætti að eftirleiðis sæti ákvarðanir samkvæmt lögunum kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Samkvæmt núgildandi lögum sæta tilteknar ákvarðanir kæru til nefndarinnar en aðrar til ráðherra. Rök eru ekki talin standa til þess fyrirkomulags og með því að færa úrskurðarvaldið til nefndarinnar eykst skilvirkni og líkur eru á því að málshraði aukist. Þá er til staðar mikil sérfræðiþekking hjá nefndinni. Loks er það talið tryggja betra samræmi í réttarframkvæmd að ákvarðanir á grundvelli laganna fái meðferð þar. Breyting þessi er því til þess fallin að efla réttaröryggi borgaranna og tryggja vandaða stjórnsýslu.
Loks er lagt til að kafli náttúruverndarlaga um þvingunarúrræði og refsiviðurlög verði tekinn upp í heild sinni í lög um Vatnajökulsþjóðgarð. Slík úrræði hefur skort í síðarnefndu lögunum og því mikilvægt að þau verði tekin upp til að tryggja samræmi og heimildir stjórnvalda til að bregðast við brotum gegn lögunum. Með breytingunni verða valdheimildir samkvæmt lögunum skýrari og réttindi almennings betur tryggð en gert er með gildandi lögum.
Virðulegi forseti. Ég hef rakið meginefni þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.