náttúruvernd o.fl.
Herra forseti. Mig langar að taka nokkur atriði úr frumvarpinu hérna og skoða aðeins nánar. Í 2. mgr. 2. liðar 3. gr. segir m.a., með leyfi forseta:
„Rekstraraðili náttúruverndarsvæðis getur enn fremur ákveðið sérstakt gjald fyrir aðgang að svæðinu ef spjöll hafa orðið af völdum ferðamanna eða hætta er á slíkum spjöllum og skal tekjum af því varið til eftirlits, lagfæringar og uppbyggingar svæðisins eða aðkomu að því.“
Ég er almennt hlynnt því að ferðamenn séu rukkaðir um vægt gjald á vinsælum náttúruperlu- og áfangastöðum til að standa undir þjónustu og uppbyggingu á svæðinu. Mér finnst óeðlilegt að skattgreiðendur eigi alltaf endalaust að standa straum af öllu þegar að þessu kemur. En ég velti fyrir mér hvort í þessari málsgrein sé ekki verið að gefa rekstraraðila of víðtækar heimildir. Þarna sé hægt að setja upp lokunarpósta t.d. á fjallvegum og hálendisvegum ef einhver ferðamaðurinn, innlendur sem erlendur, ákveður að aka utan vegar. Þarf þetta ekki að skoðast svolítið og þrengja aðeins hvað átt er við með þessu sérstaka gjaldi og þessari heimild sem rekstraraðili hefur, hann hafi ekki heimild til að setja upp gjald bara hvar sem er og hvenær sem er?
Í 3. mgr. 2. liðar 3. gr. segir:
„Gjöld samkvæmt ákvæði þessu skulu renna til náttúruverndarsvæða sem stofnunin hefur umsjón með eða hefur falið þriðja aðila umsjón með og skal ráðstafað til að mæta kostnaði við vinnslu og afgreiðslu umsókna, rekstur og þjónustu, uppbyggingu og viðhald innviða og umsjón og eftirlit með dvalargestum og rekstraraðilum innan marka náttúruverndarsvæða.“
Ég hef talað um og gagnrýnt áður að innan þessa kerfis, eins og t.d. Vatnajökulsþjóðgarðs, er ekkert sem segir að gjald sem innheimt er á t.d. svæði A sé nýtt til uppbyggingar á því svæði. Þetta fer allt í eina hít og fjármagnið er svo flutt yfir á annað náttúruverndarsvæði jafnvel, þrátt fyrir að svæði A þurfi á því að halda. Í 7. gr. er einmitt þetta nákvæmlega sama tíundað fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Ég teldi eðlilegt að það fjármagn sem innheimt er á hverju svæði fyrir sig, og þessi svæði eru stór og víðfeðm, sé nýtt til uppbyggingar innan þess. Þetta verði að skoða vandlega.
Í kaflanum um Vatnajökulsþjóðgarð og refsiábyrgð segir m.a., með leyfi forseta:
„Þegar alvarleg spjöll verða á náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs við framningu brots skv. 4. mgr. 15. gr. eða brot gegn því ákvæði telst sérlega vítavert að öðru leyti má gera upptækt með dómi vélknúið ökutæki sem notað hefur verið við að fremja brot, nema ökumaður hafi notað ökutækið í heimildarleysi. Ökutækið sem gert er upptækt skal vera eign ríkissjóðs.“
Ég átta mig ekki alveg á því hvort þetta sé yfirhöfuð framkvæmanlegt. Hvernig á að framkvæma þetta t.d. þegar um er að ræða bílaleigubíl sem bílaleiga á og ferðamaðurinn er löngu farinn úr landi? Ef það á að gera ökutæki upptækt með dómi, hversu langan tíma tekur að fá þann dómsúrskurð? Ég sé ekki alveg hvernig þetta á að vera framkvæmanlegt innan þessara laga eins og þetta er fram sett.
Svo kemur fram í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar, sem ég tek undir að miklu leyti, að frumvarpið taki ekki nægjanlega mið af álagsstýringu á fjölsóttum ferðamannastöðum. Það er mikilvægt tæki til að ná jafnvægi þar og stýra og lágmarka neikvæð áhrif. Samtökin benda á, og ég tek undir, að almenn gjaldtaka af ferðamönnum fyrir aðgang að vinsælum áfangastöðum sé frekar tekjuöflun fyrir ríkið en raunveruleg álagsstýring. Álagsstýring er nánast engin á Íslandi, það er bara þannig.
Í framhaldi af þessu langar mig að nota tækifærið og benda hæstv. ráðherra á að það sé mjög brýnt að gera breytingar á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, með þessari sameiningu stofnana, á 1. og 20. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð. Mig langar að nota sem rökstuðning dæmi er varðar friðun fyrrverandi umhverfisráðherra á Austurafrétti í Bárðardal undir Vatnajökulsþjóðgarð. Í 1. gr. laga Vatnajökulsþjóðgarðs segir, með leyfi forseta:
„Landsvæði í Vatnajökulsþjóðgarði getur verið í eigu íslenska ríkisins eða í eigu annarra aðila enda liggi fyrir samþykki eiganda viðkomandi lands um að það verði hluti Vatnajökulsþjóðgarðs. Leita skal samþykkis viðkomandi sveitarstjórnar fyrir friðlýsingu landsvæðis í sveitarfélaginu.“
Í þessa grein laganna vísuðu bæði fyrrverandi sveitarstjórn og þáverandi ráðherra vegna stækkunarinnar þegar Austurafréttur Bárðardals var friðaður og settur undir Vatnajökulsþjóðgarð. Þessi grein stangast stórlega við 20. gr. sömu laga þar sem segir, með leyfi forseta:
„Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs skal í samráði við svæðisráð og Umhverfisstofnun gera tillögu til ráðherra um reglugerð fyrir þjóðgarðinn.
Drög að reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð skulu kynnt sveitarstjórnum á svæðinu, landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum og þeim gefinn kostur á að gera athugasemdir við þau. Leita skal álits Náttúrufræðistofnunar Íslands á vistfræðilegu þoli þeirra svæða þar sem ætlunin er að veiðar og búfjárbeit verði heimil. Við setningu reglugerðarinnar skal við það miðað að landnýting innan þjóðgarðsins sé sjálfbær að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands.“
Því má bæta við að mörk þjóðgarðsins eru sett með þessari grein, 20. gr. Færa má rök fyrir því að þegar ráðherra beitir 1. gr. við friðlýsingu og setningu reglugerðar þá skauti hann fram hjá 20. gr. laganna af því það hentar honum akkúrat þarna, sem er, nota bene, eini lagatextinn um mörk þjóðgarðsins og því nokkuð skýr lína um hvernig standa skuli að setningu reglugerðar. Hver er þá tilgangur 20. gr. ef ekki þarf að horfa til hennar við stækkun og útvíkkum þjóðgarðsins? Þessi lög um stækkun þjóðgarðsins eru gríðarlega órökrétt þar sem ákvörðun um friðun og stækkun kemur fyrst en friðlýsingarskilmálarnir koma svo eftir á, með stjórnunar- og verndaráætlun, sem sagt skjóta fyrst og spyrja svo.
Þá má benda á að í verkefnislýsingu fyrir tillögu að breytingum á stjórnunar- og verndaráætlun er ekki gert ráð fyrir gagnaöflun grunngagna fyrr en í þriðja þætti vinnuferilsins. Gott dæmi um þessi vinnubrögð eru svör þjóðgarðsvarðar norðursvæðis á íbúafundi árið 2022, rúmum sjö mánuðum eftir friðlýsingu, sjö mánuðum, ég tek það fram. Spurningin var, með leyfi forseta: „Hver er ástæða Vatnajökulsþjóðgarðar að friða þetta svæði og hver er sýn ykkar á að þess þurfi?“ Vitið þið hvert svarið var? „Það er einmitt verið að finna út úr því með þessari vinnu.“
Þannig er lítið mál fyrir æðstu stjórnendur þjóðgarðs að lofa fögru fyrir fram, t.d. áframhaldandi nytjum eins og veiði, búfjárbeit og opnum vegslóðum, en breyta svo eftir að ný reglugerð hefur verið undirrituð af ráðherra og svæðið friðað. Um þetta eru mörg dæmi. Þá er vert með tilliti til almannahagsmuna að upplýsa um skrif þjóðgarðsvarðar í enn öðru málinu í Vatnajökulsþjóðgarði, með leyfi forseta:
„Ef ég væri einn í heiminum, með náttúruverndarlögin og þjóðgarðsskilgreiningar IUCN myndi ég ekki hika við að loka báðum leiðum. Á hinn bóginn er til mikils að vinna að bæta samkomulag við …“ — ég segi bara X, hef það svoleiðis — „svo almenningsálitið snúist betur á sveif með þjóðgarðinum. Líklega væri best að samþykkja þessar tillögur sem bráðabirgðafyrirkomulag sem verði endurskoðað eftir nokkur ár þegar þjóðgarðurinn hefur fest sig betur í sessi”.
Með öðrum orðum er verið að segja: Segjum já, brosum, til þess að sýna þjóðinni góðu hliðina, en þegar tíminn hefur aðeins liðið þá getum við tekið þetta allt til baka.
Þá er fyrirkomulag laga um Vatnajökulsþjóðgarð í engu samræmi við náttúruverndarlög sem ganga út á að friðlýsingarskilmálar liggi fyrir og hafi verið kynntir áður en ákvörðun er tekin um að ný svæði séu friðlýst. Þessi staðreynd sýnir bara, eins og margoft hefur bent á og ég hef skrifað um í greinum, að Vatnajökulsþjóðgarður eins og hann er í dag er ríki innan ríkis. Náttúruverndarlög ættu að vera meginregla friðlýsingar. Þau fela í sér forgangsröðun og hagsmunamat, bæði faglegt mat á þeim svæðum sem skulu friðlýst með tilliti til annarrar landnýtingar og að fjármunir málaflokksins nýtist vegna mikilvægra svæða landsins. Við friðlýsingu samkvæmt náttúruverndarlögum eru friðlýsingarskilmálar kynntir fyrir fram. Aðferðir við stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs sýna að þegar hentar getur ráðherra fullnýtt vald sitt sem sækja má með óljósum og mistúlkanlegum lögum og skauta á milli þeirra eins og sannur keppnismaður án þess nokkurn tíma að þurfa að hafa áhyggjur af tapi.