náttúruvernd o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fjöruga og innihaldsríka ræðu og ég heyri að hv. þingmaður þekkir þessi mál býsna vel. Margt af því sem hún kom inn á er eitthvað sem ég hvet eindregið til þess að umhverfis- og samgöngunefnd fari vel yfir. Ég ætla samt að gera tilraun til að bregðast við örfáum atriðum. Ég held ég nái ekki að bregðast við þeim öllum í andsvari og ég held að ég þyrfti líka bara aðeins lengri tíma til að geta brugðist við þeim í almennilegri ræðu. Mig langar til að byrja með, af því að það var minnst á heimildirnar til að rukka sérstakt gjald þegar spjöll hafa orðið, að vekja athygli á því að þessi heimild er inni í lögum í dag. Rekstraraðili hefur slíka heimild til að rukka í dag en þá gildir hún eingöngu þegar um er að ræða hættu á spjöllum eða spjöll eru komin á viðkomandi svæði. Svo er þetta auðvitað þannig að gjöldin þurfa að koma fram í gjaldskrá sem ráðherra samþykkir. Varðandi ákvæði um upptöku á ökutæki þá gildir það sama um það ákvæði. Það er inni í lögum í dag, því hefur verið beitt mjög varfærnislega ef nokkuð og þar eru auðvitað bara strangar reglur um meðalhóf o.s.frv.
Að öðru leyti tek ég eindregið undir það sem hv. þingmaður nefndi varðandi álagsstýringu. Þetta er eitt af því sem er komið inn á í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og við erum staðráðin í því að gera betur þar. Mér finnst ekki hafa hreyfst nógu mikið á undanförnum árum hvað varðar álagsstýringu á þessum fjölförnustu ferðamannastöðum. Betur má ef duga skal og gott að eiga þar bandamann í hv. þingmanni.