156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

náttúruvernd o.fl.

214. mál
[18:37]
Horfa

Ágústa Ágústsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég hef svo sem ekki miklu við að bæta og geri mér grein fyrir því að hann þarf lengri tíma til að fara yfir þetta allt saman. Mig langar samt aðeins að impra á því þegar er verið að meta hættu á mögulegum spjöllum. Hver metur það? Mér finnst þurfa að skýra þetta betur, hver sé möguleg hætta á spjöllum. Við vitum það öll að innan kerfisins er alls konar fólk, alveg eins og við segjum í öllum flokkum; það er gott fólk í öllum flokkum og svo er fólk sem okkur líkar misjafnlega við. Það er bara þannig, tölum íslensku. Það er bara staðreynd að innan Vatnajökulsþjóðgarðs, þótt meiri hluti fólks sé frábær og mín kynni af starfsfólki þjóðgarðs þar sem ég bý hafa verið mjög góð og ég tek það sérstaklega fram, þá eru innan þess hóps samt sem áður öfgar og bara miklar öfgar stundum. Maður heyrir þetta hjá ferðamönnum sem hafa verið að fara um svæðin, viðbrögð og annað sem maður bara skilur ekki alveg, rök sem er beitt. Það er þetta sem ég vil staldra við, möguleg spjöll á svæðinu. Mér finnst þetta svolítið hættulegt og bara þurfa að vinna þetta betur þannig að það sé skýrara. Hvað er hægt að meta sem möguleg spjöll? Er það ef einhver er í uppþornuðum gömlum árfarvegi og hann fer kannski með annað hjólið út fyrir slóð þar sem er möl og grjót hvort eð er? Ég veit um tilvik þar sem menn hafa verið stoppaðir og hótað sektum fyrir að vera í utanvegaakstri af því að þeir fara bara út fyrir til að stoppa og taka mynd í uppþornuðum grjótfarvegi, árfarvegi. Það er svona sem menn þurfa — mér er gríðarlega annt um náttúruna en þetta þarf að vera skýrt.