náttúruvernd o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagninguna og sömuleiðis yfirferð hans. Ekki get ég nú kvartað undan málinu þar sem þetta var eitt af þeim málum sem ég skildi eftir í möppu til hæstv. ráðherra. Ég bíð spenntur eftir hinum sem eru ekki komin. Ég held að sérstaklega liggi nú á rammanum sem er tilbúinn en við erum ekki að ræða hann hér. En miðað við hraða yfirferð, ég veit að það verður farið betur yfir það í hv. þingnefnd, þá sýnist mér að hér sé augljóslega breyting þegar kemur að stjórn þjóðgarðsins.
Nú fór þetta mál í samráðsgátt og það hefur aðeins verið farið yfir það hvaða viðbrögð hafa komið. Forsaga málsins er þessi: Eftir að við kynntum þær fyrirætlanir okkar að það væri tryggt að sveitarfélög, sem eiga land þar sem viðkomandi þjóðgarður er, væru ávallt með meiri hluta í stjórn þá breyttist viðhorf sveitarstjórnarmanna mjög mikið. Ég skil það mjög vel. Þegar ég kom að verkinu sem ráðherra var gríðarleg tortryggni og andstaða í gangi út af fyrirætlunum um hálendisþjóðgarð þar sem rólegasta fólki var mikið niðri fyrir þegar maður minntist bara á orðið þjóðgarð. Ástæðan var stærstum hluta sú, að ég tel, það var mitt mat eftir samtöl við fjölmarga, að það var verið að færa völd sem voru áður heima í héraði. Nú skulum við hafa það alveg á hreinu að það er alls ekki þannig að fólki sem býr á viðkomandi svæði þyki ekki vænt um svæðið og það sé ekki náttúruverndarsinnar í bestu merkingu þess orðs. Það er þannig. En eðlilega var fólk ekki mjög hrifið af þeirri hugmynd að færa valdið frá sínu svæði til Reykjavíkur, svo það sé bara sagt. Höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs, af því hann kom til umræðu þegar ég kom að málum, voru í Garðabæ. Nú er ég enginn sérfræðingur en ég tel að Vatnajökulsþjóðgarður heiti Vatnajökulsþjóðgarður af því að hann liggur að Vatnajökli og Garðabær liggur ekki að Vatnajökli. Áður fyrr voru höfuðstöðvarnar í 101 Reykjavík. Eitt af mínum fyrstu verkum var að færa höfuðstöðvarnar heim í Vatnajökulsþjóðgarð, á Höfn í Hornafirði. Það gafst mjög vel og það breyttist mjög viðhorfið og samstarfið við sveitarstjórnir, ekki bara þar heldur annars staðar þegar menn fundu að það fylgdi hugur máli.
Í öllum þeim fyrirætlunum sem við vorum með var það ekki þannig að við værum að ýta á nokkurn mann neins staðar að stofna þjóðgarð í sínu heimahéraði en hins vegar settum við marga hópa af stað þar sem menn voru að skoða það sem sneri að málefnasviði ráðuneytisins. Annars vegar voru það grænorkumálin að stærstum hluta, að vísu fleiri þættir en svona að stærstum hluta, og síðan náttúruverndin. Niðurstaðan var sú í öllum hópunum að skoða þjóðgarða. Í Vestfjarðahópnum komu hugmyndir um þjóðgarð á sunnanverðum Vestfjörðum, í Dölum sömuleiðis um þjóðgarð sem er gríðarlega spennandi verkefni, og sömuleiðis um þjóðgarð á Langanesi. Vestmannaeyjar, það var kannski aðeins öðruvísi. Ég vona að ég sé ekki að gleyma neinum hópi, það er þó líklegt að svo sé. Jú, svo er auðvitað vinnuhópur núna undir forystu Drífu Hjartardóttur sem er að skoða sérstaklega hugmyndir um hvort það væri skynsamlegt að setja þjóðgarð í kringum Þórsmörk.
Forsendan var alveg skýr og kynnt úti um allt land á opnum fundum og líka á fundum með sveitarstjórnum. Það var alltaf skýrt, alltaf tryggt að sveitarstjórnir væru í meiri hluta í þjóðgörðunum. Af hverju? Hér voru hv. þingmaður og hæstv. ráðherra að skiptast á skoðunum um mál og þá kom fram, sem er rétt, að þú getur verið með fyrirkomulag en svo ertu með mismunandi einstaklinga og einstaklingar koma og fara og það er bara mjög skiljanlegt að heimafólk vilji ekki vera í þeirri stöðu að allt í einu, vegna þess að það er í góðri trú og treystir kannski viðkomandi einstaklingum sem eru á þeim tíma við stjórnvölinn, sitji það uppi hjálparlaust og geti ekki haft áhrif á mál sem það vill hafa áhrif á.
Mér þykir því miður að þetta hafi breyst, þetta mál sem var grunnurinn að því að sveitarstjórnarmenn og heimafólk um landið var tilbúið til þess að skoða og kom sjálft fram með tillögur um þjóðgarða. Þær tillögur komu ekki úr ráðuneytinu. Það var alltaf fólk á viðkomandi svæði sem þekkti svæðið vel sem kom með tillögur, annars vegar þegar kom að tengingum, grænorkumálunum, framleiðslu á orku og sömuleiðis komu alltaf með hugmyndir, mjög spennandi hugmyndir, um að fara í það að stofna þjóðgarð. Þá var forsendan alltaf sú, grunnforsendan, að meiri hluti í stjórninni væru sveitarstjórnarmenn á svæðinu. En það er búið að breyta því í þessu frumvarpi. Það þykir mér mjög miður og ég sé engin málefnaleg rök fyrir því.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að það verði tveir sveitarstjórnarmenn og einn sem er skipaður af ráðherra en síðan eru settir í stjórnina einn frá útivistarsamtökum og einn frá umhverfissamtökum. Í fyrrnefndum hugmyndum var gert ráð fyrir að það gætu verið áheyrnarfulltrúar en sömuleiðis var gert ráð fyrir að áheyrnarfulltrúar kæmu frá samtökum ferðaþjónustu eða ferðaþjónustuaðilum á viðkomandi svæði. Það komu líka fram hugmyndir, sá ég, í samráðsgáttinni að hafa fulltrúa frá atvinnulífinu. Menn geta haft allar skoðanir á því. Mér finnst það alla vega hugmynd sem vert er að skoða gaumgæfilega. En þú getur bætt við áheyrnarfulltrúum án þess að hafa áhrif á þessa grundvallarreglu að sveitarstjórnin sé alltaf í meiri hluta, ef þú ert með með þriggja manna stjórn og tveir eru frá sveitarfélögum. Þannig að mér þykir þessi breyting mjög miður og ég staldra fyrst og fremst við þetta.
Það þarf náttúrlega líka að skoða það sem hér stendur um svæðisstjórn. Það var sömuleiðis í frumvarpinu sem fór í samráðsgátt. Það var ekki alltaf þannig að hugmyndir ráðherrans færu alla leið því þrátt fyrir að ráðherrann teldi sig tala mjög skýrt þá gat þetta breyst á leiðinni. Það er talað um að svæðisstjórn hafi umsjón með náttúruvernd en síðan er ýmislegt annað sem tengist viðkomandi þjóðgörðum með beinum hætti og friðlýstum svæðum. Það er, með leyfi forseta, Náttúruverndarstofnun sem er með það hlutverk að innheimta gjald fyrir eftirlit með framkvæmdum á friðlýstum svæðum sem stofnunin hefur gefið leyfi eða undanþágu fyrir og heimilt að ákveða gjald fyrir þjónustu á náttúruverndarsvæðum í nágrenni þeirra, svo sem vegna bílastæða, salerna og tjaldsvæða. Gjaldið getur verið fyrir tiltekna þjónustu eða aðgang að mismunandi þjónustu á vegum náttúruverndarsvæðis í ákveðinn tíma.
Ég tel það vera mjög misráðið, virðulegur forseti, að hverfa frá þessari grundvallarreglu. Auðvitað er það þannig að það kemur ný ríkisstjórn, það kemur nýr ráðherra og ég get auðvitað ekki haft nein áhrif á það hvað ný ríkisstjórn gerir en hér er verið að fara frá þeirri grundvallarreglu að heimamenn geti verið vissir um að það er ekkert hægt að gera þarna án þeirra og yfir í það að stjórn getur í krafti meiri hluta síns borið heimamenn ofurliði. Þannig er lagatextinn eins og hann er núna.
Ástæðan fyrir því að það getur verið góð hugmynd að byggja upp þjóðgarða og hefur gengið mjög vel, er ekki vegna þess að ástandið sé svo hræðilegt á viðkomandi svæði að það þurfi að grípa til einhverra aðgerða. Þjóðgarðar geta verið gríðarleg lyftistöng fyrir viðkomandi svæði og þeir eru svo sannarlega til að vernda náttúruna og vinna eftir bestu mögulegu reglum, en það er sömuleiðis algengt, ekki bara á Íslandi, að atvinnuuppbygging fylgi starfsemi þjóðgarða. Mjög gott dæmi er t.d. þjóðgarðurinn á Snæfellsnesi sem hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif og ég held að allir heimamenn séu sáttir við hann, ég hef ekki hitt neinn sem er ósáttur við þjóðgarðinn, enda hefur hann ýtt undir atvinnusköpun, ferðaþjónustu og sömuleiðis haft mjög jákvæð áhrif á nærsamfélag sitt. Það er alveg stórkostlegt. Ef hv. þingmenn og þeir sem fylgjast með eru ekki búnir að heimsækja þjóðgarðinn á Snæfellsnesi nýlega þá hvet ég þá til að gera það, ég get lofað öllum þeim sem þangað fara að þeir munu ekki sjá eftir því. Það eru möguleikarnir sem t.d. fólkið í Dölum sá, þar er stórkostleg náttúra. Dalir eru svæði sem á gríðarlega mikið inni og ég tala nú ekki um Langanesið þar sem þú ert með annað eins, það er svæði sem er með mjög lítinn hluta af ferðamönnum eins og Dalirnir. Dalirnir eru nær stærstu þéttbýlisstöðum landsins heldur en Langanesið. Það er enginn vafi að ef menn myndu stíga þau skref að gera þjóðgarða þá myndi það verða aðdráttarafl fyrir mjög mikinn fjölda af ferðamönnum og við skulum ekki gleyma því að um 90% ferðamanna koma hingað til lands út af ósnortinni náttúru þannig að þetta myndi vekja athygli þeirra og myndi styrkja byggðir og atvinnustarfsemi víða um land.
Virðulegur forseti. Ég er ekki ánægður með það og hef miklar áhyggjur af því að menn fari fram með lagatextann eins og hann er núna. Ég vona að hv. stjórnarmeirihluti skoði þetta ásamt öðrum í hv. þingnefnd því að þessi texti er þvert á það sem var kynnt fyrir sveitarstjórnum. Það var algjörlega skýrt hjá öllum sveitarstjórnum að menn vildu hafa meiri hluta í stjórn og ég skil það fullkomlega, ég held að við séum öll þar. Ef við værum í sveitarstjórn eða byggjum annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu, og sumir sem eru hér í salnum búa annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu, gætum við ekki séð rökin fyrir því af hverju einhver skrifstofa sem jafnvel gæti verið á höfuðborgarsvæðinu — hún er það að vísu ekki því að ég setti Náttúruverndarstofnun á Hvolsvöll, en það breytir engu um það að hún er náttúrlega langt frá mörgum öðrum svæðum. Það eru engin rök fyrir því að fólkið sem þekkir svæðið best og hefur mestra hagsmuna að gæta sé ekki með meiri hluta í stjórn. Það eru engin rök fyrir því að það sé ekki í meiri hluta í stjórn. Það að hafa útivistarsamtök og umhverfissamtök er bara sjálfsagt, en þau geta algerlega komið sínum sjónarmiðum fram sem áheyrnarfulltrúar. Ég tel að vísu að það væri skynsamlegt að ferðaþjónustan væri líka með áheyrnarfulltrúa og jafnvel fleiri aðilar og mér finnst það áhugaverð hugmynd, sem ég hafði ekki séð fyrr en ég sá þær í þessu plaggi, að atvinnulífið væri með sérstakan fulltrúa þar.