156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

náttúruvernd o.fl.

214. mál
[18:53]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta innlegg. Mér fannst athyglisvert, ef það var að gerast, að mál frá fyrrverandi hæstv. ráðherra færu inn í samráðsgátt í einhverju allt öðru formi en hann vildi hafa þau. Það skiptir kannski ekki öllu máli í þessari umræðu en ég hjó eftir þessu.

Þetta er auðvitað eitthvað sem ég fór yfir áður en frumvarpið var lagt fram og ég held að það sé mjög mikilvægt að skipan svæðisstjórna í þjóðgörðum sé fastmótuð og að ákveðin valddreifing sé til staðar. Með þessu frumvarpi erum við auðvitað að samræma nauðsynleg ákvæði þessara lagabálka og þessi skipan svæðisstjórna er nú bara að mestu leyti í samræmi við fyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs sem hefur reynst mjög vel og ég held að það væri óeðlilegt ef það væri svo andstætt fyrirkomulag sem gilti í öðrum þjóðgörðum. Þarna erum við líka að tryggja að raddir allra heyrist, heimafólks, í gegnum sveitarstjórnarfulltrúa, fulltrúa frá sveitarstjórnunum á svæðunum, og þeir fá líka formennsku í svæðisstjórninni. En við viljum líka hafa náttúru-, útivistar- og umhverfisverndarsamtök þarna með og þannig erum við líka að tryggja þátttökurétt almennings og annarra hagsmunaaðila í ákvörðunum sem snúa að umhverfismálum. Ég ætla líka bara að minna á að það er eitthvað sem við höfum skuldbundið okkur til að gera samkvæmt Árósasamningnum. Ég skil þessi sjónarmið hv. þingmanns og virði þau en ég held að það hnígi líka mjög sterk rök að því fyrirkomulagi sem við erum að leggja hér til. Auðvitað eru kostir og gallar (Forseti hringir.) sem fylgja hvoru tveggja en það var mín niðurstaða að þetta væri skynsamleg tilhögun eins og þetta er lagt hér fram.