156. löggjafarþing — 19. fundur,  24. mars 2025.

náttúruvernd o.fl.

214. mál
[18:57]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við getum auðvitað rifjað það upp líka að þegar frumvarp til laga um Náttúruverndarstofnun var lagt fram þá átti fyrst einmitt að reyna að hafa öll hagsmunasamtökin eða grasrótarsamtökin með áheyrnaraðild í svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs. Það var tillagan. Svo gerðist það að umhverfis- og samgöngunefnd hér á þinginu gerði þáverandi ráðherra afturreka með það. En auðvitað er eðlilegt að nefndin núna fari yfir kosti og galla hvors fyrirkomulags fyrir sig. Ég held að með þeirri tilhögun sem hér er lögð til þá séu sveitarstjórnarfulltrúar með mjög mikil ítök þegar kemur að stjórnun þjóðgarðanna en við skulum líka muna að þetta er þjóðgarður, þetta er fyrir þjóðina alla og við viljum ekki algjört eignarhald viðkomandi sveitarfélaga á þessu. Það er þannig í því sem við erum að leggja hér til að tveir fulltrúar eru fulltrúar sveitarstjórnanna á svæðinu og formaður hvers þjóðgarðs er það líka. Ég held að það sé full ástæða til að vega og meta þetta í meðförum nefndarinnar en svona fljótt á litið er ég ekki sammála þessum sjónarmiðum hv. þingmanns.